Faxaflóahafnir

Fundargerðir

266. fundur

Ár 2026, föstudaginn 20. mars kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á Teamsfundi. Fundurinn hófst kl. 11:30.

Mætt:

Líf Magneudóttir

Hildur Björnsdóttir

Guðmundur Ingþór Guðjónsson

Helga Harðardóttir

Már Másson

Páll Brynjarsson

Ragnheiður H. Magnúsdóttir

Auk ofangreindra voru á fundinum Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskipta og Ragnheiður Ragnarsdóttir, deildarstjóri fjármála hjá Faxaflóahöfnum; Theodór S. Sigurbergsson og Sif Jónsdóttir frá Grant Thornton, sem er endurskoðandi félagins; Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.

Eitt mál var til umræðu:

1. Ársreikningur 2025

Fyrir fundinum lá ársreikningur félagsins fyrir árið 2025; endurskoðunarskýrsla; ábendingar vegna innra eftirlits og umsögn endurskoðunarnefndar um ársreikning.

Friðrik Þór kynnti ársreikning félagsins fyrir árið 2025 og Sif kynnti endurskoðunarskýrslu. Friðrik og Sif svöruðu spurningum fundarmanna í kjölfarið.

Stjórn gerir tillögu um arðgreiðslu sem nemur 1.639 mkr. vegna ársins 2025 og er hún í samræmi við útreikninga skv. samþykktri arðgreiðslustefnu félagsins.

Ársreikningur félagsins var samþykktur samhljóða.

2. Önnur mál

Engin önnur mál.

Fundi slitið 11:55

266. fundur - Faxaflóahafnir