Faxaflóahafnir

Fundargerðir

267. fundur

Ár 2026, miðvikudaginn 22. apríl kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 13:00.

Mætt:

Líf Magneudóttir

Friðjón R. Friðjónsson

Guðjón Heiðar Guðmundsson

Guðmundur Ingþór Guðjónsson

Helga Harðardóttir

Már Másson

Ragnheiður H. Magnúsdóttir

Auk ofangreindra sátu fundinn Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Öryggi, heilsa og umhverfi – til kynningar

Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.

2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra – til kynningar

Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.

3. Forkaupsréttarmál – til kynningar

Skútuvogur 1, F202-0890 og F230-2064

Seljandi: Fagfasteignir ehf., kt. 581125-0970

Kaupandi: Kvörnin, kt. 410376-0169

Skútuvogur 11a, eignarhluti 01-01, F202-0957

Seljandi: Steinhofen Holding ehf., kt. 621112-0230

Kaupandi: L4A ehf., kt. 661124-1050

4. Nýjar höfuðstöðvar – til samþykktar

Guðrún Jónsdóttir og Þráinn Fannar Gunnarsson, ráðgjafar frá verkfræðistofunni Eflu komu á fundinn undir þessum lið, ásamt Jóni Garðari Jörundssyni, sviðsstjóra eigna- og þróunarsviðs og Jóhanni Birni Jóhannssyni, verkefnastjóra á framkvæmdasviði. Ráðgjafarnir kynntu niðurstöður þarfagreiningar fyrir nýtt hafnarhús, staðarval og tillögur að næstu skrefum, auk þess að svara spurningum fundarmanna.

Stjórn samþykkti samhljóða eftirfarandi tillögu:

"Fyrir fundinum lá skýrsla verkfræðistofunar Eflu Nýtt Hafnarhús, og kynning um sama efni. Stjórn felur hafnarstjóra að vinna áfram að áformum um byggingu nýrra höfuðstöðva Faxaflóahafna. Miðað verði við að þær rísi á enn óskilgreindri lóð við Skarfabakka sem tilgreind var í kynningu Eflu á 263. fundar stjórnar og sameini þá starfsemi sem í dag fer fram í Hafnarhúsi við Tryggvagötu og Bækistöð við Fiskislóð undir eitt þak, í návígi við þungamiðju starfsemi félagsins í Sundahöfn, með það að markmiði að auka skilvirkni og hagkvæmni í rekstri Faxaflóahafna.

Faxaflóahafnir munu gera tillögu að breytingu deiliskipulags og hefja undirbúning við útboð hönnunar með það að markmiði að samningur um hönnun komi til afgreiðslu stjórnar um næstu áramót.”

5. Áhættustefna – til samþykktar

Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri Faxaflóahafna kom á fundinn undir þessum lið og kynnti tillögur að breyttri áhættustefnu. Var stefnan samþykkt samhljóða.

6. Áhættumat – til kynningar

Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri Faxaflóahafna kom á fundinn undir þessum lið og kynnti áhættumat rekstrar og svaraði spurningum fundarmanna.

7. Önnur mál

Bréf frá Sameyki lagt fram.

Fundi slitið: kl. 14:55

267. fundur - Faxaflóahafnir