268. fundur
Fundur nr. 268
Ár 2026, föstudaginn 22. maí kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 9:30.
Mætt:
Líf Magneudóttir
Hildur Björnsdóttir
Guðmundur Ingþór Guðjónsson
Helga Harðardóttir
Már Másson
Páll Snævar Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Auk ofangreindra sátu fundinn J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri innviða og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.
1. Öryggi, heilsa og umhverfi – til kynningar
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.
2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra – til kynningar
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.
3. Forkaupsréttarmál – til kynningar
Geirsgata 11, F200-0221 (eignarhl. 010101)
Seljandi: G11 ehf., kt. 620198-2269
Kaupandi: Rafnar fasteignir ehf., kt. 460422-2210
Hólmaslóð 2a, F225-8046 (eignarhl. 01-301)
Seljandi: Guðlax ehf., kt. 601011-0770
Kaupandi: Laki fasteignir ehf. 541008-1440
4. Uppgjör fyrsta ársfjórðungs – til kynningar
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs, kom á fundinn undir þessum lið. Kynnti hann óendurskoðað fjárhagsuppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026. Heildartekjur á tímabilinu námu 1.139 m.kr. eða 1,3% undir áætlun; EBITDA tímabilsins er 153 m.kr. eða 14,5% undir áætlun og rekstrarniðurstaða þess er neikvæð um 40 m.kr. Friðrik svaraði spurningum fundarmanna.
5. Grundartangi, staða nýrra verkefna – til kynningar
Jón Garðar Jörundsson, sviðsstjóri eigna- og þróunarsviðs og Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri komu á fundinn undir þessum lið. Kynntu þau stöðu nýrra verkefna á Grundartanga og svöruðu spurningum fundarmanna.
6. Loftslagsbókhald og grænt bókhald – til kynningar
Jón Garðar Jörundsson, sviðsstjóri eigna- og þróunarsviðs og Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri kynntu loftslagsbókhald og grænt bókhald Faxaflóahafna fyrir 2025 og svöruðu spurningum fundarmanna. Heildarlosun frá starfsemi Faxaflóahafna (Umfang 1, 2 og 3) nam 1.511 tonnum CO2 á árinu 2025, en ef tekið er tillit til kolefnisbindingar var nettólosun neikvæð um 263 tonn. Eldsneytislosun dráttarbáta er enn sem áður meginuppspretta losunar.
7. NIS gloppugreining, framvinda – til kynningar
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs kom aftur inn á fundinn undir þessum lið. Kynnti hann stöðu framvindu úrbóta á upplýsingatækikerfum sem lagðar voru til í s.k. gloppugreiningu sem kynnt var á 260 fundi stjórnar og svaraði spurningum fundarmanna.
8. Viðskiptakjör - til samþykktar
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs kynnti tillögu að viðskiptakjörum og svaraði spurningum fundarmanna. Tillagan var samþykkt samhljóða. Jafnframt fól stjórn hafnarstjóra að vinna tillögur að breyttu fyrirkomulagi viðskiptakjara sem hvetur til betri nýtingu fastafjármuna.
9. Önnur mál
Engin önnur mál
Fundi slitið: kl. 11:40