269. fundur
Fundur nr. 269
Ár 2026, föstudaginn 12. júní kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 10:30.
Mætt:
Líf Magneudóttir
Friðjón Friðjónsson
Guðmundur Ingþór Guðjónsson – í fjarfundarbúnaði
Helga Harðardóttir
Már Másson
Páll Snævar Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir – í fjarfundarbúnaði
Auk ofangreindra sátu fundinn J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.
1. Öryggi, heilsa og umhverfi - til kynningar
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.
2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra - til kynningar
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.
3. Forkaupsréttarmál - engin forkaupsréttarmál
4. Arðgreiðslugeta - til kynningar
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs kom á fundinn undir þessum lið og kynnti útreikninga á arðgreiðslugetu Faxflóahafna og áætlun um fjármagnsskipan. Svaraði hann spurningum fundarmanna.
5. Önnur mál
a. Skýrsla starfskjaranefndar fyrir starfsárið 2025 lögð fram og rædd.
b. Starfsmenn Faxaflóahafna viku af fundi og stjórn ræddi árangursmat stjórnar sem ráðgjafafyrirtækið Attentus vann fyrir félagið.
Fundi slitið: kl. 12:05