Faxaflóahafnir

Fundargerðir

270. fundur

Fundur nr. 270
Ár 2026, föstudaginn 29. ágúst kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 12:30.

Mætt:
Brynjar Níelsson, formaður
Anna Björk Bjarnadóttir
Haraldur Benediktsson
Líf Lárusdóttir
Páll Snævar Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Regína Ásvaldsdóttir

Auk ofangreindra sátu fundinn Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Öryggi, heilsa og umhverfi - til kynningar
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.

2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra - til kynningar
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.

3. Forkaupsréttarmál
Engin forkaupsréttarmál.

4. Fjárhagsuppgjör, sex mánaða - til kynningar
Ragnheiður Ragnarsdóttir, deildarstjóri fjármála, kom á fundinn undir þessum lið. Kynnti hún óendurskoðað fjárhagsuppgjör fyrstu sex mánaða ársins 2026. Heildartekjur á tímabilinu námu 2.858 m.kr. eða 1,0% umfram áætlun; EBITDA tímabilsins er 551 m.kr. eða 2,9% umfram áætlun og rekstrarniðurstaða þess er jákvæð um 150 m.kr. Ragnheiður svaraði spurningum fundarmanna.

5. Nýtt Hafnarhús - til kynningar
Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs kynnti hugmyndir að staðsetningu nýs Hafnarshúss og stöðu umsókna um breytt deiluskipulag. Inga svaraði spurningum fundarmanna.

6. Húsnæðismál sjávarklasans - til kynningar
Jón Garðar Jörundsson, sviðstjóri eigna- og þróunarsviðs kom á fundinn undir þessum lið. Kynnti hann hugmyndir að stækkun rýmis fyrir Sjávarklasann við Grandagarð og svaraði spurningum fundarmanna.

7. Önnur mál
Farið var yfir starfsáætlun stjórnar fram að næstu áramótum.

Fundi slitið kl. 15:00