Faxaflóahafnir

Fundargerðir

272. fundur

Fundur nr. 272

Ár 2026, föstudaginn 16. október kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 9:30.

Mætt:

Brynjar Níelsson, formaður

Anna Björk Bjarnadóttir

Haraldur Benediktsson

Líf Lárusdóttir

Páll Snævar Brynjarsson

Ragnheiður H. Magnúsdóttir

Regína Ásvaldsdóttir

Auk ofangreindra sátu fundinn Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Öryggi, heilsa og umhverfi

Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.

2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra

Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.

3. Forkaupsréttarmál

Fiskislóð 81, F223-3977, ehl. 020205

Seljandi: Gengur betur eth., kt. 420115-0160

Kaupandi: Hjallatangi ehf., kt. 621298-3649

4. Lenging Aðalhafnargarðs á Akranesi - uppgjör

Bjarki Ómarsson, verkefnastjóri á framkvæmdasviði kom á fundinn undir þessum lið. Hann og Inga Rut Hjaltadóttir fóru yfir framkvæmdauppgjör Aðalhafnargarðs á Akranesi. Greiðslur til aðalverktaka námu kr. 1.164 m.kr. með verðbótum en án VSK sem er 25% umfram samningsfjárhæð. Helstu frávik skýrast af meira magn jarðefna þurfti frá landi þar sem dýpkunarefni voru ekki af þeim gæðum sem vonast var til og stöðuleiki sjávarbotns verri en áætlað var.

5. Flotastefna

Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri og Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður komu á fundinn og kynntu niðurstöðu vinnuhóps um flotastefnu Faxaflóahafna og svöruðu spurningum fundarmanna.

6. Jafnlaunavottun

Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri og Ólafur Ólafsson, mannauðsstjóri fóru yfir launagreiningu, launaákvarðanir og stöðu jafnlaunavottunar hjá Faxaflóahöfnum. Breytingar hafa orðið á lagaumhverfi launasetningar og Faxaflóahöfnum er ekki lengur skylt að sækjasteftir formlegri vottun jafnlaunakerfis. Lagt var til að formlegri vottun jafnlaunakerfis Faxaflóahafna verði hætt en önnur nálgun sem tryggja á sama árangur tekin upp. Var sú tillaga samþykkt samhljóða.

7. Önnur mál

a. Magnús Baldursson, lögmaður Faxaflóahafna og Jón Garðar Jörundsson, sviðsstjóri eigna- og þróunarsviðs komu á fundinn kl. 10:00 og fóru yfir stöðu mála á lóðunum Klettagörðum 7 og 9, og svöruðu spurningum fundarmanna.

b. Fyrir fundinum lá bréf til stjórnar frá rannsóknarnefnd samgönguslysa þar sem starfsfólki Faxaflóahafna var hampað fyrir viðbrögð eftir alvarlegt atvik á Viðeyjarsundi þann 26. maí 2023, þegar skemmtiferðaskipið Norwegian Prima sigldi frá höfn í hvassviðri.

c. Fyrir fundinum lágu leiðbeiningar verkfræðistofunnar Eflu vegna vals á aðilum í matsnefnd vegna byggingu nýs Hafnarhúss. Stjórnendur Faxaflóahafna óska eftir fulltrúa frá stjórn í nefndina, sem skipuð skal alls fimm fulltrúum. Stjórnarformanni og hafnarstjóra var falið að ræða við stjórnarnfólk og koma með tillögu að fulltrúa úr röðum hennar.

d. Stjórnarmenn kusu Regínu Ásvaldsdóttur og Pál S. Brynjarsson sem fulltrúa sína í kjaranefnd Faxaflóahafna.

Fundi slitið kl. 11:45