Faxaflóahafnir

Fundargerðir

Aðalfundur 2026

AÐALFUNDARGERÐ

Ár 2026, föstudaginn 12. júní, kl. 13:30, var aðalfundur Faxaflóahafna sf. fyrir starfsárið 2025 haldinn í sal á 3. hæð Hafnarhússins við Tryggvagötu 17, Reykjavík. Líf Magneudóttir formaður stjórnar setti fundinn og bauð fundarfólk velkomið. Hún lagði fram tillögu um að fundarstjóri verði Magnús Baldursson lögmaður og fundarritari verði Ragnheiður Ragnarsdóttir, deildarstjóri fjármáladeildar Faxaflóahafna, sem var samþykkt samhljóða. Að því loknu gaf hún fundarstjóra orðið.

Fundarstjóri gerði grein fyrir því að löglega hafi verið boðað til fundarins og upplýsti að mætt sé á fundinn af hálfu allra eigenda. Eftirtaldir voru fulltrúar eigenda á fundinum;
f.h. Reykjavíkurborgar: Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar
f.h. Akraneskaupstaðar: Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
f.h. Hvalfjarðarsveitar: Haraldur Benediktsson oddviti
f.h. Borgarbyggðar/Skorradalshrepps: Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri
Engar athugasemdir voru gerðar við boðun fundarins og var gengið til dagskrár skv. grein 4.1. í sameignarfélagssamningi fyrir félagið.

1. Skýrsla stjórnar
Formaður stjórnar félagsins, Líf Magneudóttir, flutti skýrslu stjórnar og fór yfir það helsta sem stjórn og félagið tókst á við á liðnu ári.

2. Efnahags- og rekstrarreikningur félagsins 2025
Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, fór yfir reikninga félagsins vegna ársins 2025. Theodór Sigurbergsson endurskoðandi frá Grant Thornton endurskoðun ehf. var viðstaddur til að svara spurningum ef einhverjar væru.Gunnar upplýsti að rekstur félagsins á liðnu ári hafi gengið vel. Á tímabilinu hafi verið aukning í komum skiptifarþega skemmtiferðaskipa og þeir komi með meiri tekjur til landsins. Enn eru þó vöruflutningar stærsti tekjuliður félagsins.

Félagið starfar á grundvelli hafnarlaga sem setja því m.a.ákveðnar skorður hvað varðar hóflega afkomu og að gjaldskrá félagsins sé kostnaðarrétt. Gunnar fór einnig yfir helstu fjárfestingaverkefni liðins árs en þar á meðal var lenging aðalhafnargarðar á Akranesi og ný farþegamiðstöð á Skarfabakka sem fengið hefur nafnið Vör.

Fundarstjóri lýsti eftir athugasemdum eða spurningum um reikningana og skýrslu stjórnar samkvæmt 1. dagskrárlið. Engar athugasemdir eða spurningar bárust. Reikningar voru samþykktir samhljóða.

3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins.
Fundarstjóri bar upp svohljóðandi tillögu stjórnar:
Hafnarstjórn gerir þá tillögu til aðalfundar að arðgreiðsla til eigenda verði 1.639 milljónir króna. Tillagan er í samræmi við arðgreiðslustefnu hafnarstjórnar. Arður skiptist á eignaraðila eftir eignarhlutföllum.

Tillagan var samþykkt samhljóða.

4. Tillaga stjórnar um stefnumörkun og framtíðarsýn sbr. gr. 5.5 og skýrsla um framkvæmdastefnunnar og árangur af innleiðingu hennar.
Fundarstjóri upplýsti að ekki væru breytingar stefnumörkun og framtíðarsýn frá fyrra ári. Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, gæða- og umhverfisstjóri Faxaflóahafna, fjallaði um framkvæmd og árangur af gildandi stefnu, sem inniheldur 36 skilgreind markmið.

Fundarstjóri leitaði eftir spurningum úr sal en þær voru engar. Hann tók fram að óbreytt stefna kallaði ekki á staðfestingu eigenda.

5. Tillaga stjórnar um stefnu um fjármagnsskipan, sbr. gr. 5.5. og skýrsla um framkvæmd stefnunnar og árangur af innleiðingu hennar.
Fundarstjóri upplýsti að á síðasta aðalfundi var samþykkt að vísa fyrirliggjandi tillögu stjórnar til umfjöllunar í sameiginlegum hópi eigenda um fjármagnsskipan Faxaflóahafna og boðað verði til sérstaks eigendafundar að aflokinni þeirri umfjöllun. Fyrir liggur að þeirri vinnu er ekki lokið. Reykjavíkurborg lagði fram sömu tillögu fyrir aðalfund þ.e. að tillögu stjórnar félagsins verði vísað til umfjöllunar í sameiginlegum hópi eigenda og boðað verði til sérstaks eigendafundar að aflokinni þeirri umfjöllun.

Fundarstjóri leitaði eftir spurningum eða athugasemdum fundarmanna. Gunnar Tryggvason hafnarstjóri tók til máls og upplýsti að stefnan hefði verið samþykkt af stjórn árið 2023 og byggt tillögur sínar um arðgreiðslu á henni síðan þá. Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

6. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu sbr. gr. 5.5. og skýrsla um framkvæmd hennar og árangur afinnleiðingu hennar.
Fundarstjóri upplýsti að tillaga stjórnar væri óbreytt starfskjarastefna, sem samþykkt var af eigendum á aðalfundi árið 2023. Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, gæða- og umhverfisstjóri Faxaflóahafna, fjallaði stuttlega um framkvæmd stefnunnar og árangur af innleiðingu hennar. Kom m.a. fram í máli hennar að fyrirtækið leitist við að vera með samkeppnishæf laun án þess að vera leiðandi á markaði og það markmið hafi náðst.

Fundarstjóri kallaði eftir spurningum úr sal sem voru engar. Hann tók einnig fram að óbreytt stefnakalli ekki á staðfestingu eigenda.

7. Ákvörðun um stjórnarlaun
Gerð var tillaga um að stjórnarlaun samsvari flokki 2 í launakerfi fastra nefnda hjá Reykjavíkurborg og að formaður fái tvöföld stjórnarlaun, líkt og gilt hefur undanfarin ár.

Tillagan var samþykkt samhljóða.

8. Lýst kjöri stjórnar, sbr. grein 5.1.
Fundarstjóri kynnti þær tilkynningar eignaraðila um tilnefningu í stjórn félagsins sem lágu fyrir:
Frá Akraneskaupstað:
Aðalmaður: Líf Lárusdóttir
Varamaður: Guðmundur Ingþór Guðjónsson

Frá Hvalfjarðarsveit:
Aðalmaður: Haraldur Benediktsson
Varamaður: Guðrún Sigríður Gísladóttir

Sameiginlegur óháður fulltrúi Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar:
Aðalmaður: Páll Brynjarsson
Varamaður: Hrafnhildur Tryggvadóttir

Fundarstjóri lýsti framangreinda aðila rétt kjörna í stjórn félagsins. Fundarstjóri upplýsti að ekki lægu fyrir tilnefningar af hálfu Reykjavíkurborgar í stjórn félagsins. Af hálfu borgarinnar var eftirfarandi tillaga lögð fyrir aðalfund þennan:
Lagt er til að lýsing á kjöri fulltrúa borgarinnar í stjórn félagsins verði frestað til framhaldsaðalfundar sem boðað verður til eigi síðar 15. september n.k.

Fundarstjóri gaf orðið laust um þessa tillögu en engar spurningar eða athugasemdir komu fram. Að því loknu var tillagan borin undir atkvæði. Tillagan var samþykkt samhljóða.

9. Kosning löggilts endurskoðanda.
Lagt var til að Grant Thornton endurskoðun ehf. fari með endurskoðun reikninga félagsins og var tillagan samþykkt samhljóða.

10. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Engin mál voru borin upp undir þessum dagskrárlið.

Fundarstjóri lýsti dagskrá fundarins tæmda og frestaði honum um óákveðinn tíma en í síðasta lagi til 15. september nk. sbr. samþykktri tillögu undir dagskrárlið 8. Fundarstjóri óskaði eftir heimild til þess að fundarstjóri og fundarritari gangi frá fundargerð og sendi eigendum rafrænt, sem var samþykkt samhljóða af öllum eigendum á fundinum.

Fundi var slitið kl. 14:12.

Fundargerð þessi er undirrituð rafrænt af fundarstjóra og fundarritara.
Magnús Baldursson
Ragnheiður Ragnarsdóttir