Fundur nr. 256
Ár 2025, þriðjudaginn 29. apríl kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu.
Fundurinn hófst kl. 9:30.
Mætt:
Helga Harðardóttir
Hildur Björnsdóttir
Már Másson
Páll Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Guðmundur Ingþór Guðjónsson – í fjarfundarbúnaði
Auk þeirra voru á fundinum Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar
Tryggvason, hafnarstjóri sem ritaði fundargerð.
1. Öryggi, heilsa og umhverfi
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.
2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.
3. Forkaupsréttarmál
Hafnarstjóri kynnti að fallið hafi verið frá forkaupsrétti eftirfarandi fasteigna með venjulegum
fyrirvara um að afnot lóða falli að gildandi deiliskipulagi og lóðarleigusamningum
a) Erindi JÁS 3 ehf. um sölu á Grandagarði 5, Reykjavík.
Fastanr. 200-0171, merking: 01-0101.
Kaupandi: Grandagarður ehf.
4. Jafnréttis- og launastefna
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis – og gæðastjóri Faxaflóahafna kom inn á fundinn undir þessum lið.
Kynnti hún lokadrög að breyttri jafnréttis- og launastefnu, en drögin voru til umfjöllunar á síðasta fundi.
Svaraði hún spurningum fundarmanna. Stefnan var samþykkt samhljóða.
5. Fjárhagsuppgjör fyrsta ársþriðjungs 2025
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs, og Ragnheiður Ragnarsdóttir, deildarstjóri
fjármála komu á fundinn undir þessum lið. Kynntu þau óendurskoðað fjárhagsuppgjör fyrsta
ársfjórðungs 2025. Heildartekjur á tímabilinu námu 1.235 m.kr. eða 12,5% umfram áætlun;
EBITDA tímabilsins er 329 m.kr. eða 38,4% umfram áætlun og rekstrarniðurstaða þess er
jákvæð um 202 m.kr. eða 112,5% umfram áætlun. Svöruðu þau spurningum fundarmanna.
6. Markaðsáætlun
Sigurður Jökull Ólafsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna kom á fundinn undir þessum lið. Kynnti hann
markaðsáætlun og vörumerkjahandbók fyrirtækisins og svaraði spurningum fundarmanna.
7. Mannauðsmál
Ólafur Ólafsson, starfsmannastjóri og Magnús Baldursson lögmaður Faxaflóahafna komu á fundinn
undir þessum lið. Hafnarstjóri fór yfir það breytingaferli sem félagið hefur verið í frá árinu 2021 og
fjallaði um erfiðar ákvarðanir í mannauðsmálum því tengdu og svaraði spurningum fundarmanna.
8. Önnur mál
Engin önnur mál
Fundi slitið: 12:25