Faxaflóahafnir

Fundargerðir

Fundur nr. 261

Ár 2025, mánudaginn 6. október kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á aukafundi. Fundurinn var fjarfundur; haldinn á Teams og hófst kl. 10:00.

Mætt:
Líf Magneudóttir
Hildur Björnsdóttir – vék af fundi undir 2. lið
Guðmundur Ingþór Guðjónsson
Helga Harðardóttir
Páll Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Már Másson
Auk ofangreindra voru á fundinum Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Fjárhagsáætlun 2026
Friðrik Þór Hjálmarsson kom á fundinn undir þessum lið og kynnti helstu atriði fjárhagsáætlunar og svaraði spurningum fundarmanna. Áætlunin var áður kynnt á síðasta fundi stjórnar. Fjárhagsáætlun fyrir 2026 samþykkt.

Stjórn Faxaflóahafna leggur fram svohljóðandi bókun:
Stjórn Faxaflóahafna samþykkir fjárhagsáætlun fyrir félagið fyrir árið 2026 á grundvelli þeirra forsendna sem fram koma í kynningu stjórnenda. Áætlunin gerir m.a. ráð fyrir að rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði (EBITDA) nemi 2.000 m.kr. á árinu; að fjárfesting ársins nemi 2.625 m.kr. og að heildareignir félagsins í lok árs nemi 21.004 m.kr.

2. Grundartangi – viðræður um lóðaúthlutanir
Hafnarstjóri kynnti stöðu viðræðna um lóðaúthlutanir á Grundartanga, stöðu framkvæmda, átak í umgengnismálum og svaraði að lokum spurningum fundarmanna.

Fundi slitið kl. 10:48



Fundur nr. 261 - Faxaflóahafnir