Fundur nr. 262
Ár 2025, föstudaginn 7. nóvember kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 9:30.
Mætt:
Líf Magneudóttir– vék af fundi eftir 5. lið
Hildur Björnsdóttir
Guðmundur Ingþór Guðjónsson – í fjarfundarbúnaði
Helga Harðardóttir
Páll Brynjarsson – í fjarfundarbúnaði
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Már Másson
Auk ofangreindra voru á fundinum Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.
1. Öryggi, heilsa og umhverfi
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.
2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.
3. Forkaupsréttarmál
Engin forkaupsréttarmál voru til umfjöllunar.
4. Fjárhagsuppgjör fyrstu níu mánaða 2025
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs kynnti óendurskoðað fjárhagsuppgjör fyrstu níu mánaða 2025. Heildartekjur á tímabilinu námu 5.686 m.kr. eða 10,8% umfram áætlun; EBITDA tímabilsins er 2327 m.kr. eða 43,7% umfram áætlun og rekstrarniðurstaða þess er jákvæð um 1.840 m.kr. eða 84,5% umfram áætlun. Svaraði hann spurningum fundarmanna.
5. Ráðgjöf v. arðgreiðslustefnu og ávöxtunarleiða
Ingunn Ólafsdóttir og Magnús Gunnarsson frá Innri endurskoðun og ráðgjöf komu á fundinn undir þessum lið og kynntu minnisblað um arðgreiðslur og ávöxtunarleiðir og svöruðu spurningum fundarmanna.
6. Úttekt á mannauðsferlum
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfi- og gæðastjóri og Ólafur Ólafsson, mannauðsstjóri komu á fundinn undir þessum lið og kynntu niðurstöður úttektar Innri endurskoðunar og ráðgjafar á mannauðsferlum Faxaflóahafna. Gyða og Ólafur svöruðu spurningum fundarmanna.
7. Vinnustaðagreining
Lella Erludóttir frá ráðgjafarfyrirtækinu Profectus kom á fundinn undir þessum lið; kynnti niðurstöður vinnustaðargreiningar sem gerð var á haustmánuðum og svaraði spurningum. Snæfríður Einarsdóttir sviðsstjóri hafnarinnviða og Ólafur Ólafsson mannauðsstjóri komu einnig á fundinn og kynntu drög að úrbótaáætlun og svöruðu spurningum fundarmanna.
8. Fasteignir við Korngarða
Helgi Laxdal, sviðsstjóri innviða kom á fundinn undir þessum lið. Kynntu þeir Friðrik Þór samantekt á stöðu fasteigna við Korngarða í Sundahöfn og svöruðu spurningum fundarmanna.
9. Önnur mál
Engin önnur mál
Fundi slitið: kl. 11:55