Faxaflóahafnir

Fundargerðir

Fundur nr. 263

Fundur nr. 263
Ár 2025, föstudaginn 12. desember kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu.
Fundurinn hófst kl. 9:30.

Mætt:
Líf Magneudóttir
Hildur Björnsdóttir – í fjarfundarbúnaði og – vék af fundi undir 6. lið
Guðmundur Ingþór Guðjónsson
Helga Harðardóttir
Már Másson
Páll Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Auk ofangreindra voru á fundinum Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Öryggi, heilsa og umhverfi
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.

2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.

3. Forkaupsréttarmál
Engin forkaupsréttarmál voru til umfjöllunar.

4. Nýtt hafnarhús, þarfagreining
Guðrún Jónsdóttir og Þráinn Fannar Gunnarsson frá verkfræðistofunni Eflu komu á fundinn undir þessum lið. Kynntu þau greiningu á þörfum starfseminnar sem stefnt er að fari í nýtt hafnarhús sem og greiningu á staðarvalskostum. Svöruðu þau spurningum fundarmanna.

5. Ný hafnarmörk
Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður kom á fundinn undir þessum lið og kynnti drög að breyttum hafnarmörkum sem eru í samræmi við nýlegar breytingar á hafnalögum. Hann svaraði spurningum fundarmanna. Breytingarnar munu verða sendar til umsagnar hjá innviðaráðuneyti og Samgöngustofu.

6. Stefna og stefnumarkmið
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri kom á fundinn undir þessum lið; kynnti stöðu innleiðingar stefnumarkmiða og svaraði spurningum fundarmanna.

7. Breytingar á skipuriti
Hafnarstjóri kynnti breytingar á nafni sviðs sem áður hét lóðir og mannvirki en verður frá og með áramótum eigna- og þróunarsvið.

8. Önnur mál
Fyrir fundinum lágu erindi frá Eldingu, Landssambandi smábátaeigenda og Sea Safari sem hafnarstjórn fól hafnastjóra að svara.
Hafnarstjóri kynnti starfsáætlun endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar fyrir starfsárið 2025-2026.

Fundi slitið: kl. 11:55