Faxaflóahafnir

Fundargerðir

Fundur nr. 264

Ár 2026, föstudaginn 23. janúar kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 9:30.

Mætt:
Líf Magneudóttir
Hildur Björnsdóttir
Guðmundur Ingþór Guðjónsson
Helga Harðardóttir
Már Másson
Páll Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Auk ofangreindra voru á fundinum Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Öryggi, heilsa og umhverfi
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.

2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.

3. Forkaupsréttarmál
Brúarvogur 1-3, 104 R. L-212207, F-2309730 og mögulegur byggingarréttur
Seljandi: Lífland, kt. 501075-0519
Kaupandi: Fasteignir ehf. kt. 581125-0970

4. Fyrirkomulag hafnargæslu vegna skemmtiferðaskipa 
J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða kom á fundinn undir þessum lið og kynnti breytingar á fyrirkomulagi hafnargæslu vegna skemmtiferðaskipa og útboð á skimunarþjónustu. Snæfríður svaraði spurningum fundarmanna.

5. Fyrirtækjasamningur FFH og KVH 
Ólafur Ólafsson, mannauðsstjóri Faxaflóahafna kom á fundinn undir þessum lið og kynnti nýgerðan fyrirtækjasamning Faxaflóahafna og starfsfólks í Kjarafélagi viðskipta- og hagfræðinga, Stéttarfélagi tölvunarfræðinga og Verkfræðifélags Íslands. Stjórn samþykkti samninginn samhljóða.

6. Áherslur í styrktarmálum 
Eldar Ástþórsson, markaðsstjóri kom á fundinn undir þessum lið og kynnti áherslur Faxaflóahafna í veitingu styrkja og svaraði spurningum fundarmanna. Stefnt er að því að málið komi aftur fyrir stjórn á fundi hennar í marsmánuði.

7. Húsnæðismál Sjávarklasans 
Helgi Laxdal, sviðsstjóri eigna- og þróunarsviðs og Þórður Már Sigfússon, skipulagsfulltrúi komu á fundinn undir þessum lið. Kynntu þeir valkosti varðandi framtíðarhúsnæði Sjávarklasans og svöruðu spurningum fundarmanna. Stefnt er að því að mótaðri tillaga komi til afgreiðslu á seinni stigum.

8. Önnur mál
Engin önnur mál.

Fundi slitið: kl. 11:40

Fundur nr. 264 - Faxaflóahafnir