Fundur nr. 265
Ár 2026, föstudaginn 27. febrúar kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 9:30.
Mætt:
Líf Magneudóttir
Hildur Björnsdóttir
Guðmundur Ingþór Guðjónsson
Helga Harðardóttir
Már Másson
Páll Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Auk ofangreindra voru á fundinum Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.
1. Öryggi, heilsa og umhverfi
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.
2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.
3. Forkaupsréttarmál
Eignayfirfærsla – sömu eigendur
Fiskislóð 47, F-222-1408
Eigandi: Hafgæði sf., kt. 510990-1539
Nýr eigandi: Hvalbakur ehf. kt. 711193-2219
Viðauki við áður gerðan samning, 16. mars 2022
Hólmaslóð 3, F-220-947
Eigandi: Skel fjárfestingafélag hf., kt. 590269-1749
Nýr eigandi: Gallon ehf., kt. 630921-2280
4. Fjárhagsuppgjör 2025
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðstjóri viðskiptasviðs, og Ragnheiður Ragnarsdóttir, deildarstjóri fjármála komu á fundinn undir þessum lið og þeim næsta. Kynntu þau óendurskoðað fjárhagsuppgjör ársins 2025 og svöruðu spurningum fundarmanna. Heildartekjur ársins numu 6.978 m.kr. og eru þær 7,0% umfram áætlun. EBITDA ársins nam 2.486 m.kr. sem er 32,6% umfram áætlun. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 1.594 m.kr. eða 52,5% umfram áætlun.
5. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2026
Fyrir fundinum lá tillaga um endurskoðaða fjárhagsáætlun líðandi árs vegna ófyrirséðs tekjumissis sökum bilana hjá Norðuráli á Grundartanga. Gert er ráð fyrir að heildatekjur Faxaflóahafna verði 172 m.kr. lægri á líðandi ári en í gildandi áætlun. Var breytingin samþykkt samhljóða.
6. Áhættustefna
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri kom á fundinn undir þessum lið; kynnti drög að uppfærðri áhættustefnu Faxaflóahafna og svaraði spurningum fundarmanna. Stefnt er að samþykkt stefnunnar á næsta fundi stjórnar.
7. Önnur mál
Fyrir fundinum lá erindi frá Huldu Rós Guðnadóttur, sem ásamt meðhöfundum bar sigur úr býtum í samkeppni um útilistaverk í Vesturbugt, árið 2017. Óskar Hulda eftir því að Faxaflóahafnir taki skýra afstöðu til þess hvort gengið verði til samninga við höfunda um uppsetningu verksins. Stjórn telur rétt að kannað verði í samstarfi við höfunda þess hvort umrædd staðsetning sé heppileg óbreyttri útfærslu verksins, m.a. í ljósi þess byggingamagns sem áformað er á nálægðri lóð. Stjórn telur jafnframt að stefnt skuli að ákvörðun þegar hillir undir lok byggingaframkvæmda í Vesturbugt og felur hafnarstjóra að svara erindinu á þeim nótum.
Fundi slitið: kl. 11:25