Faxaflóahafnir

Fundargerðir

271. fundur

Fundur nr. 271

Ár 2026, föstudaginn 18. september kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu.

Fundurinn hófst kl. 9:30.

Mætt:

Brynjar Níelsson, formaður

Anna Björk Bjarnadóttir

Haraldur Benediktsson

Líf Lárusdóttir

Ragnheiður H. Magnúsdóttir

Regína Ásvaldsdóttir

og Páll Snævar Brynjarsson sem tók þátt í gegnum fjarfundarbúnað.

Auk ofangreindra sátu fundinn Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar

Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Öryggi, heilsa og umhverfi - til kynningar

Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.

2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra - til kynningar

Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.

3. Forkaupsréttarmál

Afsal forkaupsréttar og breyting á þinglýstri kvöð vegna söluskráningar:

Tryggvagata 19 (Tollhúsið), F2100-0241

Seljandi: FSRE f.h. Ríkissjóðs, kt. 540269-6459

Kaupandi: Í söluferli

4. Fjárhagsáætlun - til samþykktar

Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs og Ragnheiður Ragnarsdóttir, deildarstjóri

fjármála, komu á fundinn undir þessum lið og kynntu fjárhagáætlun fyrir komandi ár. Friðrik og

Ragnheiður svöruðu spurningum fundarmanna.

Eftirfarandi tillaga var lögð fyrir fundinn:

Stjórn Faxaflóahafna samþykkir fjárhagsáætlun fyrir félagið fyrir árið 2027 á grundvelli þeirra

forsendna sem koma fram í kynningu stjórnenda. Gerir hún m.a. ráð fyrir að rekstrarafkoma fyrir

fjármagnsliði (EBITDA) nemi 1.875 m.kr. á árinu, að fjárfesting ársins nemi 2.429 m.kr. og að

heildareignir félagsins í lok árs nemi 21.414 m.kr.

Tillagan var samþykkt samhljóða.

5. Landtengingar á Skarfabakka - til kynningar

J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða kynnti framkvæmdir við landtengingar á

Skarfabakka og stöðu þeirra. Snæfríður svaraði spurningum fundarmanna.

6. Þróun Kornbakkareits - til kynningar

Jón Garðar Jörundsson, sviðstjóri eigna- og þróunarsviðs kom á fundinn undir þessum lið.

Kynnti hann hugmyndir að þróun Kornbakka og svaraði spurningum fundarmanna.

7. Staða verkefna á Grundartanga - til kynningar

Jón Garðar Jörundsson fór yfir stöðu verkefna á Grundartanga og svaraði spurningum

fundarmanna.

8. Önnur mál

Farið var yfir dagskrá vinnudags stjórnar.

Fundi slitið kl. 11:50