Skilmálar fyrir leigubifreiðar á hafnarsvæði Faxaflóahafna sf.
1. Gildissvið og markmið
Skilmálar þessir gilda um aðgang að afmörkuðum lokuðum svæðum fyrir leigubifreiðar við VÖR, Skarfabakka og Miðbakka. Markmið skilmálanna er að tryggja öryggi, gæði, vandaða framsetningu þjónustunnar og jákvæða upplifun viðskiptavina.
2. Skilyrði fyrir aðgangi að svæðum og umsóknir
Aðeins leigubifreiðar er uppfylla eftirtalin skilyrði er heimill aðgangur að þeim svæðum sem tilgreind eru í 1. gr. hér að framan;
a. Í gildi sé rekstrar- og atvinnuleyfi samkvæmt lögum nr. 120/2022 um leigubifreiðaakstur.
b. Rekstraraðili er skráður hjá leigubifreiðastöð með gildu starfsleyfi hjá Samgöngustofu.
Faxaflóahafnir áskilja sér rétt til að óska eftir staðfestingu á skráningu rekstrarleyfishafa hjá leigu-bifreiðastöð með gildu starfsleyfi og/eða gögnum sem sýna að skilyrði laga og reglugerða er lúta að leigubifreiðaakstri séu uppfyllt.
Sótt er um aðgangsheimild á heimasíðu Faxaflóahafna undir umsóknir. Rekstraraðili/atvinnuleyfishafi með aðgangsheimild telst vera notandi viðkomandi svæða.
3. Skyldur Faxaflóahafna
Faxaflóahafnir veita notenda aðgang að afmörkuðum leigubílasvæðum við VÖR, Skarfabakka og Miðbakka til þess að taka á móti eða skila af sér farþegum.
4. Skyldur notanda
Notandi ber ábyrgð á að uppfylla skyldur samkvæmt lögum 120/2022 með síðari breytingum svo og öðrum lögum og reglum er gilda um akstur leigubifreiða, þar á meðal skyldur um rafræna skráningu ferða og gagnavörslu eftir því sem við á.
Uppfylli notandi ekki umræddar skyldur geta Faxaflóahafnir lokað fyrir aðgang hans í allt að 4 vikur. Endurtekin eða alvarleg brot geta leitt til aðgangsbanns til frambúðar. Notanda er óheimilt að neita farþegum um þjónustu nema á grundvelli málefnalegra sjónarmiða. Óheimilt er að neita farþegum um þjónustu vegna áfangastaðar. Neitun á þjónustu varðar tafarlausu aðgangsbanni.
Notandi skal upplýsa farþega, eftir því sem við á, um að kvartanir/ábendingar vegna verðs eða þjónustu megi beina til viðkomandi leigubifreiðastöðvar og/eða Samgöngustofu. Notanda er óheimilt að skilja eftir ökutæki innan svæðisins umfram þann tíma er það tekur að taka við farþegum eða láta frá sér farþega.
5. Stýring aðgangs leigubifreiða
Aðgangi að svæðunum er stýrt með hliðum sem opnast við lestur númeraplötu. Fyrirfram bókaðar leigubifreiðar að VÖR og Skarfabakka, með aðgangsheimild, skulu fara um hlið 12 og leggja í bílastæði númer 49 og 50. Í þeim tilfellum sem bæði bílastæðin eru í notkun skal hafa samband við starfsfólk Faxaflóahafna (Ask me) sem sér um umferðastýringu inná svæði.
6. Brot og viðurlög
Brot á reglum geta leitt til tímabundinnar eða varanlegrar útilokunar frá aðgangi að þeim svæðum er skilmálar þessir gilda um sbr. 1. gr.
Brot og viðurlög eru sem hér segir:
Nr. | Tegund brots | Brottvísun | Athugasemd |
|---|---|---|---|
| 1 | Aðstoðar ekki við farangur/barnavagn | 2 vikur | |
| 2 | Óviðeigandi framkoma við farþega/starfsfólk | 2 vikur | |
| 3 | Verðskrá ekki sýnileg | 2 vikur | Verður að vera sýnileg til að fá aðgang að nýju |
| 4 | Ekið yfir 15 km/klst hámarkshraða innan svæðis | 2 vikur | |
| 5 | Brýtur umferðarlög á svæðinu | 4 vikur | |
| 6 | Reykingar í bifreið | 4 vikur | |
| 7 | Neitar ferð | 4 vikur | |
| 8 | Sækir farþega utan skilgreindsleigubifreiðasvæðis | 4 vikur | |
| 9 | Virðir ekki frelsi farþega til að velja bíl | 4 vikur | |
| 10 | Lagt í bílstæði ætlað fyrirfram bókuðum ferðum án þess vera með bókaða ferð | 4 vikur | |
| 11 | Líkamlegt/andlegt ofbeldi gagnvartfarþegum/starfsfólki | Varanleg útilokun | Tilkynnt til lögreglu |
| 12 | Viljandi tjón á eignum | Varanleg útilokun | Tilkynnt til lögreglu |
| 13 | Fölsuð skilríki eða svindl | Varanleg útilokun | Tilkynnt til lögreglu |
| 14 | Ekur inn á svæði án réttinda | Varanleg útilokun | Tilkynnt til lögreglu |
7. Tilkynningar til lögreglu og ágreiningsmál
Brot eða grunur um brot á lögum er ávallt tilkynnt til lögreglu. Ágreiningur um skilmála fer fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.
8. Breytingar á skilmálum
Faxaflóahafnir áskilja sér rétt til að breyta skilmálum þessum.
9. Gildistaka
Skilmálar þessir taka gildi þann 1. apríl 2026.