Farþegamiðstöð Skarfabakka – Jaðarbúnaður aðgangs- og innbrotaviðvörunarkerfis
Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkefnið Farþegamiðstöð Skarfabakka – Jaðarbúnaður aðgangs- og innbrotaviðvörunarkerfis
Um er að ræða almennt opið útboð sem auglýst er á EES svæðinu.
Verkið felst í útvegun á jaðarbúnaði aðgangskerfis og innbrotaviðvörunarkerfis ásamt uppsetningu, tengingu og prófunum á virkni búnaðarins, í nýrri farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Skarfabakka í Reykjavík
Útboðsgögn verða afhent á útboðsvef Faxaflóahafna á vefslóðinni https://faxafloahafnir.ajoursystem.net/ frá og með föstudeginum 31. október 2025 kl.10:00.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Faxaflóahafna eigi síðar en þriðjudaginn 2. desember 2025, kl. 15:00.
