Faxaflóahafnir

Farþegamiðstöð Skarfabakka – Jaðarbúnaður eftirlitsmyndavélakerfis

Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkefnið Farþegamiðstöð Skarfabakka – Jaðarbúnaður eftirlitsmyndavélakerfis. 

  • Um er að ræða almennt opið útboð sem auglýst er á EES svæðinu.

  • Verkefnið felst í útvegun á eftirlitsmyndavélum og uppsetningu þeirra ásamt tengingu, stillingu sjónarhorna og prófunum á virkni vélanna, í nýrri farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Skarfabakka í Reykjavík.

  • Útboðsgögn verða afhent á útboðsvef Faxaflóahafna á vefslóðinni https://faxafloahafnir.ajoursystem.net/ frá og með föstudeginum 31. október 2025 kl.10:00.

  • Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Faxaflóahafna eigi síðar en þriðjudaginn 2. desember 2025, kl. 14:00.

Farþegamiðstöð Skarfabakka – Jaðarbúnaður eftirlitsmyndavélakerfis - Faxaflóahafnir