Faxaflóahafnir

Veðurviðmið

TAKMARKANIR

vegna veður- og vindskilyrða í höfnum Reykjavíkur, Akraness og Grundartanga

Í gildi frá og með 10. september 2025

Til að tryggja örugga umferð skipa og starfsemi innan hafna og hafnarsvæða Akraness, Grundartanga og Reykjavíkur gilda eftirfarandi takmarkanir fyrir skip sem koma til, fara frá eða færa sig innan framangreindra hafna:

1. Hámarks leyfilegur vindhraði*

▪ Skemmtiferðaskip:

Umferð er óheimil fari meðalvindhraði yfir 14 m/s eða vindhviður yfir 20 m/s.

▪ Önnur skip (t.d. gámaskip, tankskip, flutningaskip):

Umferð er óheimil fari meðalvindhraði yfir 18 m/s eða vindhviður yfir 25 m/s.

2. Mat á aðstæðum

Vakthafandi hafnsögumenn meta vindskilyrði með hliðsjón af tiltækum veðurupplýsingum til að leggja mat á hvort ofangreindar vindtakmarkanir séu yfir mörkum.

3. Undanþágur

Undanþágu er hægt að veita fyrir skip sem búin eru háþróuðum stýri- og stjórnkerfum, svo sem öflugum hliðarskrúfum að framan og aftan eða Azimuth skrúfubúnaði. Í mati á undanþágum frá takmörkunum er einnig litið til vindáttar, stærðar skips og annarra viðeigandi þátta sem hafnarstjórn telur mikilvæga.

Beiðnir um undanþágu skulu sendar skriflega með tölvupósti á hafnsaga@faxafloahafnir.is. Hafnaryfirvöld meta hvert tilfelli fyrir sig.

4. Aðstoð dráttarbáta

Vakthafandi hafnsögumenn geta ákveðið að fleiri en einn dráttarbátur sé nauðsynlegur

við stjórn skips, í samræmi við reglugerð nr. 798/2009, 6. gr.

5. Lagalegur fyrirvari um ábyrgð skipstjóra á siglingu

Þrátt fyrir allar takmarkanir, undanþágur eða ákvarðanir um fjölda dráttarbáta sem hér er kveðið á um, helst ábyrgð skipstjóra á siglingu og öruggri stjórnun skipsins innan hafnarsvæða full og óskert.