Faxaflóahafnir
Svona tekur Akranes á móti gestum ⚓🩵

Svona tekur Akranes á móti gestum ⚓🩵

Þegar Le Bellot sigldi inn til Akraness á þjóðhátíðardaginn blöstu við tveir sögufrægir vitar, falleg strandlengja go bærinn handan hafarinnar þar sem þjóðhátíðarstemning ríkti þann 17. júní.

Á bryggjunni tóku síðan hlýjar móttökur við, þar sem farþegum var fagnað með harmonikkuleik og söng í flutningi tveggja fyrrverandi bæjarstjóra Akraness, Gísla Gíslasonar og Gísla S. Einarssonar. Sá fyrrnefndi var jafnframt hafnarstjóri Faxaflóahafna á árunum 2005–2020.

Þetta fallega myndband frá komunni fangar vel það sem Akranes hefur fram að færa sem áfangastaður ferðamanna og skemmtiferðaskipa – efirminnilega innsiglingu, höfn í hjarta bæjarins og einstaklega hlýlegt andrúmsloft.

Lenging hafnargarðs Arkaness

Með lengingu aðalhafnargarðsins er Akraneshöfn nú betur í stakk búin til að taka á móti meðalstórum skemmtiferða- og leiðangursskipum. Koma Le Bellot á þjóðhátíðardaginn markaði tímamót og var fyrsta skemmtiferðaskipið sem lagðist að bryggju á Akranesi frá komu National Geographic Explorer í ágúst 2021.

Næsta skemmtiferðaskip sem kemur til Akraness í sumar er SH Vega, þann 14. ágúst.

Við hlökkum til að taka á móti skipinu og gestum þess – og bjóða enn fleiri skip og gesti velkomna til Akraness á komandi árum.