
Metumsvif, uppbygging og þróun – ársskýrsla Faxaflóahafna 2025
Stjórn Faxaflóahafna samþykkti ársreikning félagsins fyrir árið 2025 á fundi sínum 20. mars síðastliðinn. Á aðalfundi félagsins, sem haldinn var 12. júní í Hafnarhúsinu, höfuðstöðvum Faxaflóahafna við Tryggvagötu í Reykjavík, var ársskýrsla félagsins fyrir árið 2025 kynnt eigendum. Hún er nú aðgengileg á rafrænu formi hér á vef Faxaflóahafna.
Árið 2025 var viðburðaríkt í starfsemi Faxaflóahafna. Árið einkenndist af áframhaldandi uppbyggingu hafnarmannvirkja, auknum umsvifum og mikilvægum áföngum í þróun félagsins. Rekstrarniðurstaðan var jafnframt sú sterkasta í sögu félagsins. Bæði tekjur og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) voru umfram áætlun og ásamt farþegafjölda náðu hæstu gildum frá stofnun Faxaflóahafna.
Metár í rekstri og aukin umsvif
Rekstrartekjur ársins námu 6.978 milljónum króna, samanborið við 6.463 milljónir króna árið 2024, sem er um 8% aukning milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 2.486 milljónum króna, samanborið við 2.222 milljónir króna árið áður, sem jafngildir tæplega 12% aukningu. Bæði rekstrartekjur og EBITDA voru umfram áætlun og þær hæstu frá stofnun Faxaflóahafna.
Alls voru 1.398 skipakomur til hafna Faxaflóahafna á árinu. 330.311 farþegar komu eða fóru með skemmtiferðaskipum um hafnirnar, samanborið við 321.966 farþega árið 2024, og hafa aldrei verið fleiri félagsins. Sérstaklega fjölgaði farþegum sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni á Íslandi og undirstrikar það vaxandi mikilvægi Reykjavíkur sem áfangastaðar fyrir farþegaskipti. Um hafnarsvæðin fóru jafnframt 420.376 TEU gámaeiningar, sem staðfestir áfram mikilvægt hlutverk Faxaflóahafna í vöruflutningum og tengingum Íslands við umheiminn.
Stjórn félagsins lagði jafnframt til arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1.639 milljónir króna, í samræmi við samþykkta arðgreiðslustefnu félagsins.
Mikilvægir áfangar í uppbyggingu
Árið markaði tímamót í upbbygingu hafnarmannvirkja félagsins.
Byggingu nýrrar farþega- og fjölnota miðstöðvar við Skarfabakka, Vör, lauk á árinu og var mannvirkið tekið í notkun vorið 2026. Um er að ræða stærstu einstöku fjárfestingu í sögu Faxaflóahafna og mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Reykjavíkurhafnar sem alþjóðlegrar þjónustuhafnar fyrir skemmtiferðaskip.
Samhliða því héldu framkvæmdir við lengingu aðalhafnargarðs á Akranesi áfram og var framkvæmdin einnig tekin í notkun árið 2026. Á Grundartanga var jafnframt unnið að uppbyggingu nýs athafnasvæðis til að mæta vaxandi þörfum atvinnulífsins, auk þess sem áfram var fjárfest í hafnaraðstöðu og innviðum á starfssvæði félagsins.
Í ávarpi sínu í ársskýrslunni segir Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna:
„Áfram var haldið með tvær stærstu fjárfestingar félagsins; uppbyggingu farþegamiðstöðvar við Skarfabakka og lengingu aðalhafnargarðs á Akranesi. Verða þær báðar teknar í notkun á líðandi ári.“
Sjálfbærni, nýsköpun og þróun til framtíðar
Áfram var unnið markvisst að því að þróa hafnirnar í takt við þarfir samfélags, atvinnulífs og umhverfis.
Faxaflóahafnir gengu til liðs við Festu – miðstöð um sjálfbærni og urðu jafnframt aðilar að European Onshore Power Supply Association (EOPSA). Þá hófst samstarf við Snerpa Power um snjallstýringu raforku í höfnum og stigið var mikilvægt skref í áframhaldandi rafvæðingu hafnarstarfseminnar.
Í ávarpi sínu í ársskýrslunni bendir Líf Magneudóttir, stjórnarformaður Faxaflóahafna, á að hafnir starfi í síbreytilegu umhverfi þar sem auknar kröfur, tækniframfarir og alþjóðleg þróun kalli stöðugt á aðlögunarhæfni, framsýni og vilja til breytinga.
„Faxaflóahafnir starfa í síbreytilegu umhverfi þó starfsemin kunni að vera íhaldssöm í eðli sínu. Félagið þarf að búa yfir seiglu og aðlögunarhæfni og stjórn og starfsfólk þarf að fylgjast grannt með þróun mála hérlendis og erlendis.“
Hún segir jafnframt að það sé eðli hafnarstarfsemi að þróast samhliða samfélaginu.
„Hafnir eru ekki kyrrstæðir punktar í borgarskipulagi heldur lifandi kerfi sem þróast í takt við samfélag, tíðaranda og tæknibreytingar.“
Þessi sýn endurspeglast í starfsemi Faxaflóahafna, þar sem áfram er lögð áhersla á að byggja upp örugga, skilvirka og sjálfbæra hafnarinnviði sem mæta þörfum samfélags og atvinnulífs, bæði í dag og til framtíðar.
Ársskýrsla 2025
Í ársskýrslu Faxaflóahafna fyrir árið 2025 er farið yfir rekstur félagsins, fjárhagsuppgjör, framkvæmdir, þróun hafnanna, umhverfis- og öryggismál ásamt helstu verkefnum og áföngum ársins.
Faxaflóhafnir tengja Ísland við umheiminn
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Grundartanga, Akranesi og Borgarnesi og leggur áherslur í að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.
