
Faxaflóahafnir setja veðurmiðið til að tryggja örugga umferð skipa
Til að tryggja örugga umferð skipa og starfsemi innan hafna og hafnarsvæða sinna á Akranesi, Grundartanga og í Reykjavík hafa Faxaflóhafnir sett takmarkanir á umferð skipa vegna veður- og vindskilyrða. Takmarkanir þessar eru þær fyrstu sem gefnar eru út opinberlega af höfn á Íslandi og byggjast á ítarlegri greiningu á vindgögnum, hermirannsóknum auk þess sem stuðst var við þekkingu og reynslu hafnsögumanna Faxaflóahafna á hafnarsvæðunum.
Samvinna við Marine Training Center í Hamburg
Í kjölfar alvarlegs atviks á Viðeyjarsundi í maí 2023, þegar skemmtiferðaskipið Norwegian Prima var nær strandað í suðvestan hvassviðri, ákváðu Faxaflóahafnir að ráðast í gerð viðmiða sem hægt væri að styðjast við og myndi styrkja hafnsögumenn og skipstjóra skipa við ákvarðanatöku í krefjandi aðstæðum.
Ákveðið var að fá fyrirtækið Marine Training Center Hamburg (MTC) til að leiða vinnu við gerð skýrslu til að styðjast við við útgáfu á veðurtakmörkunum, en fyrirtækið hefur reynslu af sambærilegri vinnu fyrir hafnir, m.a. fyrir höfnina í Hamborg í Þýskalandi. Settar voru upp hafnir Faxaflóahafna í siglingahermum MTC þannig að herma mætti sambærileg skip og leggjast að hafnaraðstöðum Faxaflóahafna í þeim veðuraðstæðum sem geta orðið og var í því samhengi stuðst við gögn úr veðurstöðvum Faxaflóahafna 4 ár aftur í tímann.
Samtals voru gerðar 77 hermanir á hafnaraðstöðunum og til verksins voru fengnir hafnsögumenn Faxaflóahafna ásamt yfirhafnnsögumanni, en þeir sáu um stjórntök skipa í siglingaherminum ásamt því að gefa dráttarbátum skipanir um aðstoð.
Aukið öryggi á sjó
Veðurmiðiðin, takmarkanirnar vegna veður- og vindskilyrða, eru settar með það að markmiði að tryggja örugga umferð skipa og starfsemi innan hafna og hafnarsvæða Faxaflóhafna.
Það er von og sannfæring Faxaflóahafna að með útgáfu þessara takmarkana muni öryggi skipa aukast og að alvarlegum atvikum vegna krefjandi aðstæðna fækka.
Takmarkanirnar voru samþykktar á fundi hafnarstjórnar þann 22. ágúst og gefnar út síðastliðið haust. Þær má finna í heild sinni hér.