
Frá Gömlu höfninni að Akranesvita – útisýning Faxaflóahafna á Akranesi
Útisýning Faxaflóahafna, Sjóslys við Ísland, hefur verið sett upp á vitasvæðinu á Breiðinni á Akranesi. Þetta er í fyrsta sinn sem útisýning fyrirtækisins á Miðbakka er flutt til Akraness. Sýningin er komin á sinn stað fyrir menningarhátíðina Vökudaga, sem hefjast 22. október, og er áætlað að hún standi til áramóta.
Faxaflóahafnir hafa um árabil staðið fyrir útisýningum á Miðbakka í Gömlu höfninni í Reykjavík, þar sem ólík viðfangsefni tengd hafinu og sjósögunni hafa verið í fyrirrúmi. Sýningarnar hafa gefið íbúum og gestum tækifæri til að staldra við og kynnast þessari sögu í umhverfi hafnarinnar.
Sjóslys við Ísland hefur verið vel sótt í sumar, bæði af borgarbúum og ferðamönnum. Hugmyndin að því að færa sýninguna til Akraness kviknaði meðal heimamanna og hefur nú orðið að veruleika í samstarfi við starfsfólk Faxaflóahafna.
Saga sjóslysa og öryggis á sjó
Sýningin varpar ljósi á þróun sjóslysa við Íslandsstrendur frá árinu 1870 til okkar daga. Hún byggir á umfangsmikilli heimilda- og rannsóknarvinnu og kortleggur hundruð slysa með myndrænum hætti. Gestir fá þannig innsýn í hvernig slysasagan tengist breytingum á skipastól, fiskveiðum, siglingum og öryggismálum á sjó.
Sýningin er jafnframt tileinkuð minningu þeirra þúsunda sjófarenda sem hafa orðið fyrir sjóslysum við Íslandsstrendur og þeirra sem sneru ekki heim.
Höfundar sýningarinnar eru Guðjón Ingi Hauksson sagnfræðingur, Guðmundur Viðarsson ljósmyndari og sýningastjóri og Agnar Jónas Jónsson skipasmiður. Kortagerð annaðist Hans Hansen.

Menning og mannlíf við höfnina
Vitasvæðið á Breiðinni er kjörinn staður fyrir sýninguna í bæ þar sem sjósókn og hafnarstarfsemi hafa mótað samfélagið. Með sýningunni vilja Faxaflóahafnir auðga mannlíf á svæðinu og gera sameiginlega sjósögu aðgengilega bæjarbúum og gestum.
Uppsetningin á Akranesi er tilraunaverkefni og verður reynslan nýtt til að meta möguleika á áframhaldandi sýningarhaldi á svæðinu.
Sýningin er opin öllum, allan sólarhringinn, og er áætlað að hún standi til áramóta. Bæjarbúar og gestir eru hvattir til að leggja leið sína á Breiðina, njóta umhverfisins og kynna sér þennan mikilvæga þátt í sögu Íslands.

Uppbygging og mannlíf á hafnarsvæðum Faxaflóahafna
Faxaflóahafnir reka hafnir í Reykjavík, á Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi og vinna í samstarfi við atvinnulífið á þessum svæðum. Á Akranesi lauk nýverið umfangsmiklum endurbótum og lengingu Aðalhafnargarðs, sem hafa stórbætt aðstöðu til að þjónusta fiskiskip, skemmtiferðaskip og önnur stærri skip. Samhliða uppbyggingu hafnarinnviða leggja Faxaflóahafnir áherslu á samstarf við heimamenn og að gefa íbúum og gestum tækifæri til að kynnast sjósögunni og mikilvægi hafnanna í þróun byggðarlaganna.


