
Grunnskólabörn kynnast undraheimi hafsins
Sjóferð um sundin hefur í þrjá áratugi og gefið þúsundum grunnskólabarna í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðasveit og Borgarnesi kost á að læra um staðarhætti og lífríki hafsins.
Sjóferð um sundin - samstarfsverkefni Faxaflóhafna, Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og Special Tours - hefur nú staðið yfir í þjár áratugi og gefið þúsundum grunnskólabarna við Faxaflóa kost á að læra um staðarhætti og lífríki hafsins.
Verkefnið í ár hófst í byrjun mánaðarins, þanng 7. apríl, og hafa hundruðir grunnskólabarna þegar farið í siglingu um Faxaflóa með leiðsögn og fræðslu. Síðasta siglingin í ár er miðvikudaginn 6. maí.
Frekari upplýsingar um Sjóferð um sundin í ár má finna hér og hér.
Sjóferð um sundin í 30 ár
Faxaflóhafnir, Fjölskyldu -og húsdagarðurinn og feraþjónustufyrirtækið Special Tours (þá Sérferðir) hafa allt frá árinu 1996 unnið saman að því að bjóða nemendum 6. bekkinga í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðasveit og Borgarnesi upp á forsiglingu um Faxaflóann með leiðsögn og fræðslu. Sjóferð um sundin er árlegt verkefni sem notið hefur mikilla vinsælda og er oftast fullbókað í þær ferðir sem farnar eru.
Við hjá Faxaflóahöfnum erum ákaflega stolt af þessu verkefni og að gefa börnum kost á tengingu við höfnina, hafið og lífríkið sem í því býr. Ætla má að fyrir þrjátíuþúsund grunnsólabörn hafi farið í Sjóferð um sundin siglingu síðustu 30 ár þar sem um og yfir þúsund börn fara að jafnaði siglinguna ár hvert.
Faxaflóhafnir tengja Ísland við umheiminn og miðinn
Hlutverk Faxaflóahafna er að öruggar, grænar og skilvirkar hafnir og tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Rúmlega 80 manns starfa hjá Faxaflóahöfnum, sem leggja áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og sjálfbærra hafna framtíðarinnar.














