Faxaflóahafnir
Íslensk gestrisni í öndvegi á Cruise Europe 2026

Íslensk gestrisni í öndvegi á Cruise Europe 2026

Faxaflóhafnir hýstu nýverið Cruise Europe ráðstefnuna í Reykjavík þar sem hátt í 300 ráðstefnugestir komu saman til að ræða framtíð ferðaþjónustu og  vegferð skemmtiferðaskipageirans í Evrópu. Meðal fundargesta voru fulltrúar hafna víða að úr Evrópu og allstaðar af landinu, framkvæmdastjórar og ferðaskipuleggjendur skipafélaga og blaðamenn.

Þetta er í fyrsta sinn sem Curise Europe ráðstefnan, sem farið hefur fram árlega frá árinu 1991, fer fram hérlendis. Meðal þeirra borga sem hýst hafa ráðstefnuna síðustu 35 ár eru Amsterdam, Bilbao, Bergen, Bordeux, Bremen, Brussel, Dublin, Edinborg, Lissabon, Stokkhólmur og Kaupmannahöfn sem héldu ráðstefnuna í fyrra.

Cruise Europe eru samtök rúmlega 140 hafna, áfangastaða og þjónustuaðila í Evrópu, allt frá Lissabon í suðri til Svalbarða í norðri.

Kynning og markaðssetning á Íslandi sem áfangastað

Sérstakar kynningarferðir fyrir blaðamenn, ferðaþjónustuaðila og fulltrúa skipafélagana fóru fram samhliða ráðstefnunni þar sem þátttakendur fengu innsýn í möguleika Íslands sem áfangastaðar, fjölbreytta ferðaþjónustu og hafnaraðstöðu innan sem utan Reykjavíkur.

Í einni slíkri kynningarferð tók Guðni Th. Jóhannesson að sér leiðsögn. Ferðin lá meðal annars um Þingvelli, Eyrarbakka og Grindavík, þar sem Guðni miðlaði sögu þjóðarinnar, sérstöðu svæðanna - og gaf gestum tækifæri að upplifa þá einstöku blöndu náttúru, sögu og samfélags sem gerir Ísland að eftirsóttum áfangastað.

Ráðstefnugestir kynntu sér Vör

Í tengslum við Cruise Europe fengu ráðstefnugestir kynningu á Vör - nýju fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Viðeyjarsund í Reykjavík sem er fyrsta farþegamiðstöðin hérlendis sem sérhæfir sig í þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa. Margir ráðstefnugestir þáðu sömuleiðis boð um að vera viðstaddir formlega opnun Varar sem fór fram 29. maí, degi eftir að ráðstefnunni lauk.

Vör markar tímamót í mótttöku skemmtiferðaskipa og ferðaþjónustu á Íslandi. Farþegamiðstöðin leysir af hólmi þá tímabundu og takmörkuðu aðstöðu sem fyrir er við mótttöku farþegaskipa, tryggir betri og öruggari þjónustu við ferðamenn. Opnun hennar styður við markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega; þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf.

Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, verður Vör vettvangur fjölbreyttra viðburða. Húsið nýtist því ekki aðeins ferðamönnum yfir sumarmánuðina heldur verður vettvangur mannamóta okkar Íslendinga yfir vetrarmánuðina.

Faxaflóhafnir tengja Ísland við umheiminn og miðin

Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslur í að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.