
Vör - ný fjölnota farþegamiðstöð opnuð í Reykjavík
Vör, ný fjölnota farþegamiðstöð við Viðeyjarsund í Reykjavík, var formlega tekin í notkun í gær, föstudaginn 29. maí. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri Faxaflóhafna klipptu á borðann og vígðu Vör að viðstöddu fjölmenni.
Vör markar tímamót í mótttöku skemmtiferðaskipa og ferðaþjónustu á Íslandi. Ferðamiðstöðin leysir af hólmi þá tímabundu og takmörkuðu aðstöðu sem fyrir er við mótttöku farþegaskipa, tryggir betri og öruggari þjónustu við ferðamenn og styður markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega; þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf.
Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, verður Vör vettvangur fjölbreyttra viðburða. Húsið rúmar allt að 2.000 veislugesti, um 900 manns í sæti, og njóta gestir stórbrotins útsýnis yfir Viðeyjarsund.
Opnunarhátíð fyrir alla fjölskylduna á morgun, sunnudag
Faxaflóhafnir standa fyrir opnunarhátíð Varar á morgun, sunnudaginn 31. maí, klukkan 13:00-16:00 þar sem húsið verður opið gestum og gangandi og boðið verður upp á veitingar.
Á opnunarhátíðinni verður boðið fjölbreytta fjölskyldudagskrá, vinnusmiðjur og uppákomur fyrir yngri kynslóðina með margskonar tengingu við höfnina og hafið. Sjá frekari upplýsingar um opnunarhátíðina hér.

Fyrsta farþegamiðstöðin í Reykjavík í 60 ár
Vör er fyrsta farþegamiðstöðin hérlendis sem sérhæfir sig í þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa og jafnframt fyrsta farþegamiðstöðin sem opnar í Reykjavík frá opnun Bifreiðastöðvar Íslands, BSÍ árið 1965.
"Í dag fögnum við ekki aðeins nýrri byggingu, heldur hefjum nýjan kafla í sögu höfuðborgarinnar okkar og ferðaþjónustu á Íslandi" sagði Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur meðal annars í ávarpi sínu við opnunina.
Borgarstjóri vék jafnframt að hlutverki Reykjavíkur sem hafnarborgar í máli sínu:"Reykjavík hefur alltaf byggt tilveru sína á sterkri tengingu við hafið enda hafnarborg. Hefur höfnin verið lífæð okkar og helsta tenging við umheiminn og með tilkomu þessa glæsilega húss dýpkum við tenginguna enn frekar."
Borgarstjóri og gestir með "bros á vör"
Vör fékk nafn sitt í gegnum nafnasemkeppni sem haldin var fyrr í ár þar sem bárust 6.025 nafnatillögur frá 3.384 einstaklingum. Dómnefnd hafði það meðal annars að leiðarljósi við val á nafinu að það skyldi vera þjált og falla vel að íslenskri málhefð.
"Nafnið, Vör, er fallegt og merkingarþrungið. Rótgróið íslenskt orð sem vísar til lendingar og skjóls við sjóinn. Það táknar móttöku og komu ferðalanga og tengir bygginguna við íslenska menningu og hafnarsögu.
Að baki nafninu er saga. Efnt var til nafnasamkeppni og yfir 6.000 tillögur bárust frá meira en 3.300 þátttakendum. Það er nýtt Íslandsmet en fyrra met átti Harpa með rúmlega 4.100 tillögur.
Þátttakan sýnir okkur hve sterka tengingu landsmenn hafa við höfnina og verkefnið. Og eins og sagt hefur verið verður gaman að sjá gesti mæta hingað með bros á vör!"
-Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur
"Við hjá Faxaflóahöfnum erum stolt af tungumáli okkar, íslenskunni. Sum ykkar hafa eflaust rekið augun í upplýsingaskiltin sem hanga hér á víð og dreif – „Velkomin til Reykjavíkur – Welcome to Reykjavík“ fyrst á íslensku í stóru letri og svo ensku, þó íslenskumælandi viðskiptavinir skemmtiferðaskipa hér teljist í brotum af prómilli líklega. Við teljum að flestir ferðamenn hafi gaman af þessu.
Við ræddum jafnframt að nafnið gæti orðið tilefni til ýmissa útúrsnúninga og fleygra setninga – það má, enda ætlast Vör ekki til þess að njóta virðingar sem háfleigt menningarhúss – hún er hús skemmtunar fyrst og fremst. Þið eruð nú stödd í efri-Vör, ef þið hafið ekki áttað ykkur á því nú þegar.
Héðan verða farþegaskipum ýtt úr Vör þegar þau hefja ferðir sínar hringinn í kringum landið eða á fjarlægðari slóðir."
-Gunnar Tryggvason hafnarstjóri
Faxaflóahafnir tengja Ísland við umheiminn
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Fyrirtækið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslur í að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.












