Faxaflóahafnir
Hamborgartréð - Ljósin tendruð við Reykjavíkurhöfn 28. nóvember

Hamborgartréð - Ljósin tendruð við Reykjavíkurhöfn 28. nóvember

Ljósin á Hamborgartrénu verða tendruð laugardaginn 28. nóvember klukkan 17:00 við hátíðlega athöfn á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur jólalög, jólasveinar koma sigalndi inn Gömlu höfnina á Magna og gestum verður boðið upp á fiskisúpu í Landsbankanum að athöfn lokinni.

Tendrun Hamborgartrésins er fastur liður í upphafi aðventunnar í Reykjavík. Við athöfnina verður flutt jólakveðja frá Faxaflóahöfnum og sendiherra Þýskalands tendrar ljósin á trénu.

Jólasveinarnir koma sjóleiðina á Magna, leggja að Miðbakkanum og leiða gesti að fiskisúpukötlunum í Landsbankanum við Reykjastræti 6. Þar verður boðið upp á ljúffenga fiskisúpu í boði Brims og jólasveinarnir og harmonikkuleikari sjá um skemmtun og jólalög.

Saga gjafmildi og þakklætis

Saga Hamborgartrésins er saga gjafmildi og þakklætis. Íslenskir sjómenn sem lögðu að í Hamborg eftir síðari heimsstyrjöld elduðu fiskisúpu handa svöngum börnum á meðan verið var að landa úr togurum þeirra. Sem þakklætisvott hófu hafnaryfirvöld í Hamborg árið 1965 að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar og stendur Hamborgartréð við höfnina yfir hátíðarnar.

Ekki er lengur siglt landa á milli með tréð. Í staðinn styðja Faxaflóahafnir við íslenska skógrækt með kaupum á jólatré hjá Land og skógur (áður Landgræðslan og Skógræktin).

Dagskrá

Dagskráin hefst á Miðbakka laugardaginn 28. nóvember klukkan 17:00.

  • Lúðrasveit Hafnarfarðar leikur þýsk jólalög 🎄

  • Jólakveðja frá Faxaflóahöfnum ⚓

  • Sendiherra Þýskalands, Clarissa Duvigneau, tendrar ljósin á Hamborgartrénu 

  • Jólasveinar sigla inn í gömlu höfnina og leggjast að Miðbakkanum 🎅

  • Fiskisúpa! Sveinarnir leiða gesti að fiskisúpukötlunum í Landsbankanum, Reykjajastræti 6 🐟

📍 Miðbakki, Gamla höfnin – Reykjavíkurhöfn
🩵 Öll hjartanlega velkomin!

Nágrannar í Reykjavíkurhöfn

Líkt og undanfarin ár sameina nágrannar við Reykjavíkurhöfn og félög með tengsl við sjómennsku og Þýskaland krafta sína til að skapa notalega jólastund við höfnina. Að viðburðinum standa Faxaflóhafnir, Landsbankinn, Brim, Harpa, Hafnartorg, Sjómannadagsráð, Þýsk-íslenska viðskiptaráðið og Sendiráð Sambandslýðveldisins Þýskalands í Reykjavík.