
Haustfundur Faxaflóahafna 2026
Haustfundur Faxaflóahafna verður haldinn þriðjudaginn 27. október klukkan 14:00 í Vör við Viðeyjarsund.
Á fundinum verður farið yfir rekstur, framkvæmdir og framtíðaráform Faxaflóahafna, rætt um sóknarfæri í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og hlutverk hafna og innviða í ljósi breyttrar stöðu öryggis- og varnarmála í heiminum.
Dagskrá:
Brynjar Níelsson, stjórnarformaður Faxaflóahafna – Setning fundar
Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri – Rekstur og áherslur Faxaflóahafna
Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs – Framkvæmdir og framtíð hafnanna
Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins – Skemmtiferðaskip og sóknarfæri í ferðaþjónustu
Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og þróunar hjá Landhelgisgæslu Íslands – Siglingar, innviðir og öryggi í breyttu umhverfi
Umræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri: Eldar Ástþórsson, markaðs- og samskiptastjóri Faxaflóahafna.
Öll velkomin – tryggðu þér sæti
Fundurinn er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir. Nauðsynlegt er að skrá sig. Aðilar með starfsemi á hafnarsvæðum Faxaflóahafna eru sérstaklega hvattir til að mæta.
✍️ Skráðu þig á fundinn hér
Fundurinn fer fram í Vör 🚢
Vör er ný fjölnota farþegamiðstöð í Reykjavíkurhöfn sem fær nýtt hlutverk yfir vetrarmánuðina. Miðstöðin stórbætir aðstöðu fyrir farþega og styður við markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega – þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélag.
📍 Vör – Skarfagarðar 6, 104 Reykjavík (google maps)
Faxaflóahafnir tengja Ísland við umheiminn
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.