Faxaflóahafnir
Með öryggi að leiðarljósi

Með öryggi að leiðarljósi

Hjá Faxaflóahöfnum leggjum við áherslu á að vera leiðandi í öryggismálum. Morgunblaðið fjallaði nýlega um fund sjóslysarannsakenda á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum sem haldin var hérlendis nýlega og ræddi við Nick Dowden, yfirmann rannsóknardeilda sjóslysa hjá siglingastofnun Bahamaeyja, sem staddur var hérlendis vegna fundarins.

"Ég held að önnur lönd geti lært mikið af því hvernig Ísland nálgast þessi mál" segir Nick Dowden, í viðtalinu sem birtist í Morgunblaðinu 4. júní, eftir að hafa kynnt sér nýlegar reglur Faxaflóahafna um veðurviðmið og aukna þjálfun hafnsögumanna í kjölfar alvarlegs atviks á Viðeyjarsundi.

Veðurmiðiðin, takmarkanirnar vegna veður- og vindskilyrða, eru settar með það að markmiði að tryggja örugga umferð skipa og starfsemi innan hafna og hafnarsvæða Faxaflóhafna.

Sýn Faxaflóahafna er að auka lífsgæði á Íslandi með því að öruggar, grænar og skil­virkar hafnir sem tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Við leggjum áherslur í að vera leiðandi í öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.

Ljósmynd: Gunnar Leifsson, Faxaflóhafnir

Með öryggi að leiðarljósi - Faxaflóahafnir