Faxaflóahafnir
Nýtt Hafnarhús Faxaflóhafna mun rísa við við Viðeyjarsund í Sundahöfn við hlið farþegamiðstöðvarinnar Varar.

Nýtt Hafnarhús við Viðeyjarsund – forval hönnunar hafið

Faxaflóahafnir hafa auglýst forval um þátttöku í lokuðu útboði á hönnun nýs Hafnarhúss við Viðeyjarsund í Sundahöfn. Þar er fyrirhugað að reisa nýjar höfuðstöðvar félagsins og sameina meginstarfsemi þess á einum stað.

Ráðgert er að nýtt Hafnarhús verði um 3.000 fermetrar og hýsi skrifstofu- og þjónustustarfsemi Faxaflóahafna ásamt sérhæfðri vinnu- og verkstæðisaðstöðu. Markmiðið er að skapa nútímalegt og sveigjanlegt starfsumhverfi sem eflir samstarf, styttir boðleiðir og styður við skilvirka og hagkvæma starfsemi til framtíðar.

Nýr kafli í sögu Faxaflóahafna

Starfsfólk Faxaflóahafna sinnir daglegum verkefnum víða, bæði á sjó og landi, á starfssvæðum félagsins í Reykjavík, á Grundartanga og Akranesi og í Borgarnesi. Aðsetur starfsfólks er að mestu leyti í tveimur meginstarfsstöðvum í höfuðborginni, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og Bækistöðinni við Fiskislóð á Granda, sem fyrirhugað er að sameina í nýju Hafnarhúsi. Yfir sumartímann fer jafnframt umfangsmikil starfsemi fram í farþegamiðstöðinni Vör í Sundahöfn.

Faxaflóahafnir hafa um langt skeið átt heimili í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu sem félagið hefur deilt með Listasafni Reykjavíkur undanfarna áratugi og síðustu ár einnig með hafnar.haus miðstöð og samfélagi skapandi greina. Félagið seldi eignarhlut sinn í húsinu í lok árs 2021. Með nýju Hafnarhúsi hefst nýr kafli í sögu félagsins.

Hafnarhús framtíðarinnar sameinar starfsstöðvar

Fyrirhuguð staðsetning nýs Hafnarhúss er við norðurenda Skarfabakka, við Viðeyjarsund í Sundahöfn, með Viðey handan sundsins. Nýjar höfuðstöðvar verða í næsta nágrenni við farþegamiðstöðina Vör og dráttarbátaflota félagsins. Svæðið verður þannig ný heimatorfa Faxaflóahafna, í návígi við þungamiðju hafnarstarfseminnar og vel staðsett til að styðja við þjónustu félagsins á öllum starfssvæðum þess.

Við hönnun verður lögð áhersla á vandaðan arkitektúr, gott starfsumhverfi, sveigjanleika og skýrt skipulag, auk umhverfisvænna lausna og sjálfbærni. Stefnt er að Svansvottun byggingarinnar. Unnið er að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið samhliða undirbúningi verkefnisins.

Forvalið nær til fullnaðarhönnunar hússins, þar á meðal arkitekta-, verkfræði- og lóðarhönnunar. Að loknu forvali verða allt að fimm teymi valin til þátttöku í lokuðu hönnunarútboði.

Forvalsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu Ajour frá og með deginum í dag, 20. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til kl. 14:00 fimmtudaginn 1. október 2026. Forvalið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Nánari upplýsingar og forvalsgögn má finna hér.

Faxaflóhafnir tengja Ísland við umheiminn

Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.