Faxaflóahafnir
SH Vega í Akraneshöfn

SH Vega í Akraneshöfn

Leiðangursskipið SH Vega kom til Akraness föstudaginn 14. ágúst og setti skemmtilegan svip á höfnina.

Heimsóknin var hluti af sérstakri siglingu um vestanvert Ísland í tilefni almyrkvans á sólu 12. ágúst. Siglingin bar yfirskriftina Iceland and the Cosmos: A Total Solar Eclipse at Sea. Hún hófst í Reykjavík og lá meðal annars um Ísafjörð, Flatey og Stykkishólm, auk þess sem skipið var staðsett á siglingu innan almyrkvasvæðisins þegar myrkvinn átti sér stað.

SH Vega kom til Akraness frá Stykkishólmi. Farþegum bauðst meðal annars að nýta viðkomuna til að heimsækja Deildartunguhver og Kraumu. Síðdegis hélt skipið áfram til Reykjavíkur, þar sem siglingunni lauk daginn eftir.

SH Vega er 115 metra langt skip Swan Hellenic og getur tekið á móti rúmlega 150 farþegum. Skipið var smíðað árið 2022 sérstaklega til leiðangurssiglinga, meðal annars um norðurslóðir.

Koma SH Vega er ánægjulegt skref í þróun og framtíðarmöguleikum Akraness sem áfangastaðar skemmtiferðaskipa. Með lengingu aðalhafnargarðsins er Akraneshöfn nú betur í stakk búin til að taka á móti minni og meðalstórum skemmtiferða- og leiðangursskipum.

Við þökkum Pétri Þór Lárussyni, vigtmanni Faxaflóhafna á Akranesi, fyrir þessar fallegu myndir frá komunni og vonum að gestir og áhöfn SH Vega hafi notið dvalarinnar á Akranesi.