Samfélag

Verkefni á breiðum grunni
Faxaflóahafnir taka virkan þátt í samfélaginu í gegnum fjölbreytt verkefni sem miða að því að styrkja tengsl hafna og nærsamfélagsins. Lögð er áhersla á að hafnarsvæði séu ekki einungis vinnusvæði heldur einnig lifandi hluti borgarumhverfisins, þar sem almenningur, ferðaþjónusta og menning fá að njóta sín samhliða hefðbundinni hafnarstarfsemi.
Samfélagsverkefni Faxaflóahafna endurspegla einnig sterka áherslu á umhverfisvernd og sjálfbæra þróun. Með fræðslu, samstarfi við skóla, stofnanir og fyrirtæki, sem og þátttöku í menningar- og nýsköpunarverkefnum, stuðla hafnirnar að aukinni vitund um mikilvægi hafna fyrir efnahag, umhverfi og samfélag. Þannig vinna Faxaflóahafnir markvisst að því að vera ábyrgur og sýnilegur samfélagsþátttakandi.