Snjallvæðing orkuviðskipta
Stórt skref hefur verið stigið inn í framtíðina þegar kemur að afhendingu rafmagns og vatns við hafnir Faxaflóahafna.

Sjálfsafgreiðsla á orku og vatni
Vorið 2024 var tekin í notkun ný rafmagnstenging við Miðbakka í Reykjavík, sem gerir nú kleift að þjónusta minni skemmtiferðaskip með rafmagni á þremur viðlegum í Gömlu höfninni. Fjölgun hefur orðið á skipum sem nýta þessa umhverfisvænu tækni, og jafnvel eru dæmi um að skip tengist rafmagni með landtengingu í fyrsta sinn við komu til Íslands.
Á sama tíma og endurnýjun fór fram á lögnum við Austurbakka í Gömlu höfninni, voru settir upp þrír nýir afhendingarstaðir þar sem hægt er að nálgast rafmagn, kalt vatn og heitt vatn. Á Miðbakka bættist svo við afhendingarstaður fyrir heitt vatn.
Þetta markar tímamót í orku- og vatnsafhendingu, því nýtt kerfi fyrir sjálfsafgreiðslu var innleitt þar sem viðskiptavinir tengjast þjónustunni með snjallforriti. Kerfið, sem hefur notið mikilla vinsælda og góðs orðspors í höfnum víða um Danmörku, gerir notkunarupplýsingar aðgengilegar í rauntíma og einfaldar reikninga gerð. Með þessari lausn er orku- og vatns afhending að færast inn í nýtt skeið – sjálfvirknivætt, snjallt og skilvirkt. Þetta er aðeins byrjunin á frekari þróun í átt að sjálfbærari og tæknivæddari framtíð hafnarþjónustu.
Skilvirkni
Margvíslegur ávinningur
Innleiðing snjallra lausna fyrir sölu á orku og vatni getur haft margvíslegan ávinning. Með stafrænum mælum og rauntímagögnum er hægt að bæta yfirsýn og rekstraröryggi verulega. Slíkar lausnir gera hafnarstarfsmönnum kleift að fylgjast með notkun vatns og rafmagns í rauntíma, draga úr sóun og tryggja réttmæta gjaldtöku. Þetta stuðlar ekki aðeins að aukinni skilvirkni og lægri rekstrarkostnaði, heldur einnig að ábyrgari nýtingu náttúruauðlinda.
Auk þess geta snjallar lausnir aukið þjónustugæði gagnvart skipum sem koma til hafnar. Með sjálfvirkum tengingum og rafrænum greiðslum verður afgreiðsluferlið hraðara og einfaldara fyrir bæði áhafnir og hafnarstarfsmenn. Þetta eykur jafnframt samkeppnishæfni hafnarinnar sem þjónustuaðila.
Ávinningur snjallvæðingar
- Betri þjónusta
- Bætt yfirsýn
- Hraðari afgreiðsla


