Faxaflóahafnir
Cruise Europe 2026 í Reykjavík

Cruise Europe 2026 í Reykjavík

Cruise Europe 2026 ráðstefnan fer fram í Reykjavík 26.-29. maí og eru hátt í 300 ráðstefnugestir væntanlegir til landsins að kynna sér nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna, hafnararaðstöðu hérlendis og Ísland sem áfangastað. Gestir munu sömuleiðis taka þátt í umræðum hafna, áfangastaða og skipafélaga um vegferð skemmtiferðaskipageirans í Evrópu í átt að sjálfbærni í umhverfismálum, samfélagslegum áherslum jafnt sem og fjárhagslegum áhrifum.

Þetta er í fyrsta sinn sem Curise Europe ráðstefnan, sem farið hefur fram árlega frá árinu 1991, fer fram hérlendis. Meðal þeirra borga sem hýst hafa ráðstefnuna síðustu 35 ár eru Amsterdam, Bilbao, Bergen, Bordeux, Bremen, Brussel, Dublin, Edinborg, Lissabon, Stokkhólmur og Kaupmannahöfn sem héldu ráðstefnuna í fyrra.

Það eru samtökin Cruise Europe sem hýsa ráðstefnuna og í ár er það gert í samstarrfi við Faxaflóhafnir.

Frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vefsíðu Cruise Europe 2026.

Ísland sem áfangastaður og ný farþegamiðstöð

Gunnar Tryggvason hafnarstjóri fagnar því að Cruise Europe hafi valið Reykjavík sem staðsetningu næsta ársfundar.  „Komum skemmtiferðaskipa til Íslands hefur fjölgað verulega á síðustu árum og Reykjavík orðin ein af stóru höfnunum í Evrópu í þessum geira.  Nýja farþegamiðstöðin verður komin í gagnið þegar ráðstefnan fer fram og því hentar þessi tímasetning einstaklega vel. Ætla má að stjórnendur skipafélaganna heimsæki Reykjavík í tengslum við ráðstefnuna og vonandi felst í því markaðstækifæri sem nýst gæti fleiri höfnum á Íslandi.“

Dagskrá Cruise Europe 2026 fer að mestu fram i og við Reykjavíkurhöfn. Harpa hýsir ráðstefnhluta dagskrárinnar en viðburðir fara jafnframt fram í Gamla bíó og nýrri farþegamiðstöð Faxaflóhafna við Viðeyjarsund sem brátt fær nafn.

Sérstök kynningarferð fyrir blaðamenn og fulltrúa skipafélagana fer fram samhliða ráðstefnunni þar sem þátttakendur fá innsýn í möguleika Íslands sem áfangastaðar, fjölbreytta ferðaþjónustu og hafnaraðstöðu utan Reykjavíkur.

Reiknað með hátt í 300 ráðstefnugestum

Áfangastaðurinn Reykjavík ásamt Íslandi öllu hefur fest sig í sessi meðal farþega skemmtiferðaskipa, hvort heldur sem um er að ræða almennar viðkomur eða farþegaskipti, þar sem farþegarnir dvelja lengur á landinu. Því er áætlað að útgerðir skemmtiferðaskipa, evrópskar hafnir og þjónustuaðilar muni fjölmenna til að taka þátt í Cruise Europe í Reykjavik. og nýta tækifærið til að skoða nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna og þá hafnaraðstöðu sem hefur verið í stöðugri þróun hérlendis undanfarin ár.

Faxaflóahafnir hafa á undanförnum árum lagt sérstaka áherslu á að fjölga skiptifarþegum sem nýta Keflavíkurflugvöll í upphafi eða lok ferða með skemmtiferðaskipum. Skiptifarþegar dvelja að jafnaði lengur í landinu og skapa því meiri tekjur fyrir íslenskt efnahagslíf. Eins og áður hefur verið greint frá var heildarfjöldi skiptifarþega í fyrsta sinn yfir helmingur allra farþega skemmtiferðaskipa sem fór um hafnir Faxaflóhafna í fyrra. Faxaflóhafnir halda áfram að kynna Reykjavík og Ísland sem álitlegan kost til farþegaskipta og er hýsing Cruise Europe 2026 ráðstefnunnar hluti af þeirri vinnu.

Samstarfsvettvangur hafna í Evrópu

Cruise Europe eru samtök rúmlega 140 hafna, áfangastaða og þjónustuaðila í Evrópu, allt frá Lissabon í Portugal til Svalbarða í norðri. Samtökin voru stofnuð árið 1991 á fyrstu ráðstefnu Cruise Europe í Kaupmannahöfn með það markmið að auka samvinnu aðildarfélaga og markaðssetja Norður- og Atlantshafshluta Evrópu sem ákjósanlegan áfangastað skemmtiferðaskipa. Fram að því hafði Karabíska hafið og Miðjarðarhafið verið helsti áfangastaður gesta skemmtiferðaskipa, en nú 35 árum síðar hefur tekist að festa Norður og Vesturhluta Evrópu sem vinsælan áfangastað skipagesta frá öllum heiminum.

Á Cruise Europe ráðstefnunni koma aðildarfélög Cruise Europe samtakana saman til að ræða það helsta sem er á döfinni hverju sinni í skemmitferðageiranum og kynna sér aðstæður á því sem svæði sem hýsir viðburðinn.

Reykjavíkurhöfn var einn af stofnaðilum Cruise Europe samtakanna og er það mikill heiður fyrir okkur hjá Faxaflóahöfnum að fá tækifæri að hýsa þennan mikilvæga viðburð fyrir ferðaþjónustu- og skemmtiferðaskipageirann í Evrópu.

Tenging Íslands við umheiminn

Hjá Faxaflóahöfnum rekum við umfangsmestu hafnir landsins á starfssvæðum okkar í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Við tengjum stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin – og erum í vegverð að þróa snjallar hafnir framtíðarinnar.