
Cruise Europe 2026 ráðstefnan haldin við Reykjavíkurhöfn
Cruise Europe ráðstefnan hófst formlega í dag í Hörpu og eru hátt í 300 ráðstefnugestir mættir til Reykjavíkur. Aðalráðstefnudagurinn með erindum og pallborðsumræðum frá hátt í 50 fulltrúum fer fram á morgun, fimmtudaginn 28. maí.
Dagskrá Cruise Europe 2026 fer að mestu fram i og við Reykjavíkurhöfn. Harpa hýsir ráðstefnhluta dagskrárinnar en viðburðir fara jafnframt fram í Gamla bíó og nýrri farþegamiðstöð Faxaflóhafna við Viðeyjarsund sem hefur fengið nafnið Vör.
Sérstök kynningarferð fyrir blaðamenn og fulltrúa skipafélagana fer fram samhliða ráðstefnunni þar sem þátttakendur fá innsýn í möguleika Íslands sem áfangastaðar, fjölbreytta ferðaþjónustu og hafnaraðstöðu utan Reykjavíkur.
Við hjá Faxaflóahöfnum erum stolt af því að hýsa ráðstefnuna hérlendis í fyrsta sinn og þeirri mentaðafullu dagskrá sem verður boðið upp á næstu daga. Við bjóðum ráðstefnugesti hjartanlega velkomna til Reykjavíkur.
Frekari upplýsingar um Cruise Europe 2026 má nálgast í frétt okkar hér og á vefsíðu ráðstefnunnar.