
Faxaflóhafnir styðja við nýsköpun og hringrásarhagkerfi með Hringiðu
Hringiða, viðskiptahraðall KLAK-Icelandic Startups með áherslu á grænar lausnir, hefur nú opnað fyrir umsóknir. Markmið Hringiðu er að á Íslandi rísi öflug fyrirtæki sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, skapi verðmæt og áhugaverð störf og skili árangri í umhverfis- og loftslagsmálum á Íslandi.
Faxaflóahafnir hafa verið meðal bakhjarla Hringiðu frá því hraðallinn var fyrst haldin árið 2021. Við hvetjum teymi og fyrirtæki sem eru að huga að grænum lausnum, og eru hugmyndastigi eða að stíga sín fyrstu skref, til kynna sér þá sérþekkingu og stuðningsumhverfi sem hraðalinn hefur upp á bjóða. Umsóknarfrestur er til 5. mars og hægt er að sækja um hér.
Frá nýtingu hliðarvinda gámaskipa til ölduorkugarða
Meðal þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem hafa tekið þátt í Hringiðu eða orðið hafa til í tengslum við hraðaðill má nefna Sidewind, sem nýta hliðarvind á gámaskipum sem orkugjafa, og SnerpaPower sem við hjá Faxaflóaahöfnum vinnum nú með við að nýta rauntímagögn við raforkunotkun og rafvæðingu hafna.
Í gegnum Hringiðu hafa einnig farið mörg fyrirtæki með haftengda starfsemi og hafsæknar lausnir, til að mynda; Mar Eco sem vinnur að umhverfisvænum lausnum í framleiðslu og notkun veiðarfæra, Þararhat sem þróar byggingarefni úr lífrænum úrgangi smáþörungarfrmleiðslu, Optitog sem þróar búnað sem gerir veiðar og aflameðhöndlun í togurum skilvirkari, Seagrowth sem þróar vistræktaðan fiskmassa, Resea Energy sem stefnir á framleiðslu á lífeldsneyti úr þangi og Haf-Afl sem vinnur að nýtingu ölduorku við Íslandsstrendur til að skapa stöðuga og sjálfbæra orkulind fyrir framtíðina. Með fyrstu ölduorkugarðinum við Vestmannaeyjar stefna þau að því að bæta orkuöryggi og styðja við græn orkuskipti á Íslandi.
Sjá má frekari upplýsingar um fyrirtækin sem hafa tekið þátt í Hringiðu hér.
Viðakiptahraðall fyrir fumkvöðla
Hringiða er sex vikna viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja með grænar lausnir. Allt að 10 sprotaverkefnum á fyrstu stigum er þ.ar veittur aðgangur að breiðu tengslaneti leiðbeinenda úr atvinnulífinu og markvissri þjálfun í uppbyggingu sprotafyrirtækja.
Hraðallinn er í umsjón KLAK-Icelandic Startups KLAK-Icelandic Startups sem hjálpar frumkvöðlum að raungera hugmyndir sínar, fjölgar sprota-fyrirtækjum sem byggja á hugviti og eykur þannig sjálfbæra verðmætasköpun Íslands.
Bakhjarlar Hringiðu eru; Reykjavíkurborg, Terra, Samtök iðnaðarns, Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið og Faxaflóhafnir. Meðal samstarfsaðila eru Rannís, Hugverkastofan, Orkuklasinn, Breið náttúrufélag, Evris, Grænvangur, Hringrásaklasinn og Íslenski sjávarklasinn.
Tímalína, umsóknaryeðublað og allar frekari upplýsingar má finan á vefsðu Hringiðu.
Tenging Íslands við umheiminn
Faxaflóhafnir reka umfangsmestu hafnir landsins á starfssvæðum sínum í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Við tengjum stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin með öruggum, grænum og skilvirkum höfnum – og erum í vegverð að þróa snjallar hafnir framtíðarinnar.