
Hákarlar í Hafnarhúsinu
Faxaflóhafnir hafa verið meðal bakhjarla Hringiðu frá því hraðallinn fórst fyrst fram árið 2021. Í vikunni hýstum við í fyrsta sinn svokallaðan Hákarlatank, "Shark Tank" viðburð, í Hafnarhúsinu þar sem sjö teymi sem taka þátt í Hringiðu í ár kynntu nýsköpunarverkefni sín fyrir þriggja manna dómefnd.
Hringiða, viðskiptahraðall KLAK-Icelandic Startups með áherslu á grænar lausnir, fer nú fram í sjötta sinn. Markmið Hringiðu er að á Íslandi rísi öflug fyrirtæki sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, skapi verðmæt og áhugaverð störf og skili árangri í umhverfis- og loftslagsmálum á Íslandi.
Faxaflóahafnir hafa verið meðal bakhjarla Hringiðu frá því hraðallinn var fyrst haldin árið 2021. Meðal þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem hafa tekið þátt í Hringiðu eða orðið hafa til í tengslum við hraðaðill má nefna Sidewind, sem nýta hliðarvind á gámaskipum sem orkugjafa, og SnerpaPower sem við hjá Faxaflóaahöfnum vinnum nú með við að nýta rauntímagögn við raforkunotkun og rafvæðingu hafna.
Lokadagur Hringiðu fer fram í Hörpu 20. maí.
Viðakiptahraðall fyrir fumkvöðla
Hringiða er sex vikna viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja með grænar lausnir. Allt að 10 sprotaverkefnum á fyrstu stigum er þ.ar veittur aðgangur að breiðu tengslaneti leiðbeinenda úr atvinnulífinu og markvissri þjálfun í uppbyggingu sprotafyrirtækja.
Hraðallinn er í umsjón KLAK - Icelandic Startups sem hefur það að makrmiði að styðja frumkvöðla að raungera hugmyndir sínar, fjölga sprota-fyrirtækjum sem byggja á hugviti og auka þannig sjálfbæra verðmætasköpun á Íslnadi.
Bakhjarlar Hringiðu eru; Reykjavíkurborg, Terra, Samtök iðnaðarns, Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið og Faxaflóhafnir. Meðal samstarfsaðila eru Rannís, Hugverkastofan, Orkuklasinn, Breið náttúrufélag, Evris, Grænvangur, Hringrásaklasinn og Íslenski sjávarklasinn.
Frekari upplýsingar má finna á vefsðu Hringiðu.
Hákarlatankur í Hafnarhúsinu
Þriðjudaginn 12. maí héldu KLAK - Icelandic Startups svokallaðan "Shark Tank" viðburð í höfuðstöðvum Faxaflóhafna í Hafnarhúsinu. Þar komu sjö teymi sem taka átt í Hringiðu í ár og kynntu viðskiptahugmyndir sínar fyrir þriggja manna dómnefnd Faxaflóahafna.
Teymin sem tóku þátt:
Araxni
E-Lísa
Iorden
Loopable
Ratatag
Soil Lagoon
Thermal Beets Records
Hákarlarnir:
Dómnefnd Faxaflóhafna skipuðu:
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs
J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða
Tinna Jóhannsdóttir, aðstoðarmaður hafnarstjóra
Eldar Ástþórsson, markaðs- og samskiptastjóri Faxaflóhafna, kynnti starfsemi fyrirtækisins og þann veigamikla sess sem nýsköpun skipar í þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.
Tenging Íslands við umheiminn
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.












