Faxaflóahafnir
Útisýning á Akranesi opin öllum fram á nýársdag

Útisýning á Akranesi opin öllum fram á nýársdag

Útisýning Faxaflóahafna, Sjóslys við Ísland, hefur fengið góðar viðtökur á Akranesi og hafa margir lagt leið sína út að vitunum á Breiðinni til að skoða hana. Sýningin var formlega opnuð 22. október, á upphafsdegi menningarhátíðarinnar Vökudaga, og er opin öllum til og með 1. janúar 2027.

Ljósmyndirnar sem fylgja fréttinni sýna umfang sýningarinnar og þá áhrifamiklu umgjörð sem hún hefur fengið á Breiðinni. Þar mynda hafið og vitarnir sterka tengingu við viðfangsefnið – sögu sjóslysa, sjósóknar og lífs við Íslandsstrendur.

Frá Reykjavík að Akranesvita

Sýningin var áður á Miðbakka í Gömlu höfninni í Reykjavík, þar sem hún var vel sótt í sumar af bæði borgarbúum og ferðamönnum. Hugmyndin að flutningi hennar til Akraness kviknaði meðal heimamanna og varð að veruleika í samstarfi við starfsfólk Faxaflóahafna.

Vitasvæðið á Breiðinni er kjörinn staður fyrir sýninguna í bæ þar sem sjósókn og hafnarstarfsemi hafa mótað samfélagið. Með sýningunni vilja Faxaflóahafnir auðga mannlíf á svæðinu og gefa bæjarbúum og gestum tækifæri til að kynnast sameiginlegri sjósögu.

Saga sjóslysa og öryggis á sjó

Sjóslys við Ísland varpar ljósi á þróun sjóslysa við Íslandsstrendur frá árinu 1870 til okkar daga. Hundruð sjóslysa eru kortlögð með myndrænum hætti og sagan sett í samhengi við þróun skipastóls, fiskveiða, siglinga og öryggismála á sjó. Sýningin er jafnframt tileinkuð minningu þeirra sjófarenda sem urðu fyrir sjóslysum og þeirra sem sneru ekki heim.

Höfundar sýningarinnar eru Guðjón Ingi Hauksson sagnfræðingur, Guðmundur Viðarsson ljósmyndari og sýningastjóri og Agnar Jónas Jónsson skipasmiður. Kortagerð annaðist Hans Hansen.

Sýningin er opin allan sólarhringinn, til og með 1. janúar 2027. Bæjarbúar og gestir eru hvattir til að leggja leið sína á Breiðina, njóta umhverfisins og kynnast þessum mikilvæga þætti íslenskrar sjósögu.