
Fjölmenni á haustfundi Faxaflóahafna í Vör
Við þökkum öllum sem mættu á haustfund Faxaflóahafna í Vör í vikunni fyrir þátttökuna og góðar umræður. Fundurinn var sá fjölsóttasti til þessa og þar kom saman fjölbreyttur hópur viðskiptavina og samstarfsaðila, fulltrúa sveitarfélaga og annarra hagaðila. Hér má horfa á fundinn í heild sinni.
Á fundinum fórum við yfir rekstur, framkvæmdir og framtíðaráform Faxaflóahafna, auk þess sem rætt var um sóknarfæri í ferðaþjónustu og hlutverk hafna og innviða í breyttu öryggisumhverfi. Góð þátttaka fundargesta í fyrirspurnum og umræðum gerði fundinn bæði líflegan og gagnlegan.
Sérstakar þakkir fá gestafyrirlesararnir Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, og Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og þróunar hjá Landhelgisgæslu Íslands, fyrir áhugaverð erindi og framlag til umræðunnar.
Þetta var fyrsti haustfundur Faxaflóahafna í Vör við Viðeyjarsund. Það var ánægjulegt að taka á móti svo fjölmennum hópi aðeins nokkrum vikum eftir að síðasta farþegaskipið lagði þar að bryggju. Þannig nýtist Vör bæði sem farþegamiðstöð og samkomustaður – að þessu sinni fyrir samtal um framtíð hafnanna og samfélagsins.










Fjölbreytt dagskrá
Brynjar Níelsson, stjórnarformaður Faxaflóahafna – Setning fundar
Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri – Rekstur og áherslur Faxaflóahafna
Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs – Framkvæmdir og framtíð hafnanna
Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins – Skemmtiferðaskip og sóknarfæri í ferðaþjónustu
Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og þróunar hjá Landhelgisgæslu Íslands – Siglingar, innviðir og öryggi í breyttu umhverfi
Fundarstjóri var Eldar Ástþórsson, markaðs- og samskiptastjóri Faxaflóahafna.
Upptaka frá fundinum
Mbl.is streymdi fundinum í beinni útsendingu og hér má horfa á upptöku af fundinum í heild sinni.
Hér að neðan má sjá myndir frá fundinum.
Vör – miðstöð farþega á sumrin, mannamóta á veturna
Vör við Viðeyjarsund er ný fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna í Reykjavíkurhöfn. Yfir sumarmánuðina tekur húsið á móti farþegum skemmtiferðaskipa, eykur öryggi og skilvirkni í farþegaþjónustu og styður við farþegaskipti – þegar farþegar hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni í Reykjavík. Yfir vetrarmánuðina nýtist húsið fyrir fundi, ráðstefnur, veislur og aðra viðburði. Þannig þjónar Vör bæði hafnarstarfsemi og og er vettvangur fjölbreyttra mannamóta allt árið.
Faxaflóahafnir tengja Ísland við umheiminn
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, á Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.














