Faxaflóahafnir
Tímamót í íslenskri ferðaþjónustu - fyrsta skipið kemur í Vör

Tímamót í íslenskri ferðaþjónustu - fyrsta skipið kemur í Vör

Skemmtiferðaskipið Le Commandant Charcot kom til Reykjavíkur í dag og eru farþegar þess og áhöfn þau fyrstu til að nýta Vör - nýja fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Viðeyjarsund.

Hér eru á ferð tímamót í íslenskri ferðaþjónustu og móttöku skemmtiferðaskipa í höfuðborginni. Vör er fyrsta farþegamiðstöðin hérlendis sem sérhæfir sig í þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa og er janframt fyrsta farþegamiðstöðin sem rís í Reykjavík í 60 ár -frá opnun Bifreiðastöðvar Íslands, BSÍ, árið 1965.

Undanfari formlegar opnunar Varar

Vör, ný fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóhafna við Viðeyjarsund, opnar formlega síðar í mánuðinum. Nokkur minni skemmtiferðaskip fá þann heiður að vera undanfari opnunar hússins og er hið glæsilega Le Commandant Charcot vel af því komið að vera fyrsta skipið til að nýta Vör fyrir sína farþega og áhöfn.

Le Commandant Charcot hefur í áraraðir sótt Reykjavík heimi og fleiri áfangastaðir hérlenids hringinn í kringum landið. Skipið er sérhannað leiðangursskip, sérstaklega útbúið til siglinga á norðurslóðum, og tekur um sem tekur um 250 farþega.

Skemmtiferðaskipið kemur til Reykjavíkur með farþega sem eru að ljúka ferðalagi sínu hérlendis og tekur jaframt á móti nýju farþegum í Vör áður en skipið heldur í nýtt ferðalag í kvöld og áfram til Grænlands. Útgerð skipsins nýtir því hina nýju farþegamiðstöð til farþegaskipta þar sem farþegar stíga frá borði og nýjir farþega koma í þeirra stað eftir að hafa ferðast hingað til lands um Keflavíkurflugvöll.

Vör markar tímamót í þjónustu við erlenda gesti

Vör er ætlað að tryggja betri þjónustu við ferðamenn og styðja markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega; þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf.

Farþegamiðstöðin leysir af hólmi þá tímabundu og takmörkuðu aðstöðu sem fyrir er á hafnarsvæðum Faxaflóahafna. Með tilkomu miðstöðvarinnar skapast meðal anars mun betri aðstaða fyrir móttöku, öryggisafgreiðslu og þjónustu við þann mikla fjölda gesta sem koma sjóleiðina til landsins eða hefja för sína hérlendis með skemmtiferðaskipum.

Vör fær nýtt hlutverk yfir vetrarmánuðina

Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, fær Vör annað hlutverk sem vettvangur fjölbreyttra viðburða, veislna og samkoma. Vör rúmar allt að 2.000 gesti, um 900 manns í sæti og munu veislugestir njóta stórbrotins útsýnis yfir sundið.

Tenging Íslands við umheiminn

Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslur í að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.

Á mynd hér að neðan:

  • Banovsha Ibragimova, umboðsmaður - Gára

  • Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs - Faxaflóahafnir

  • Benoît-Etienne Domenget, forstjóra útgerðarinnar - PONANT Explorations Group

  • Étienne Garcia, skipstjóri Le Commandant Charcot

  • Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður - Faxaflóhafni