Faxaflóahafnir
Fyrsta stóra skemmtiferðaskipið kemur í Vör

Fyrsta stóra skemmtiferðaskipið kemur í Vör

Norwegian Star er fyrsta stóra skemmtiferðaskipið sem leggst að bryggju við Vör - nýja fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóhafna við Viðeyjarsund í Reykjavík. Með komunni hefst spennandi nýr kafli fyrir ferðaþjónustu í höfuðborginni en Vör opnar formlega síðar í þessum mánuði.

Skipið kom til hafnar í gær, þriðjudaginn 20. maí, og er hér í farþegaskiptum. Nýjir farþegar koma í skipið í dag í stað þeirra sem fóru frá borði í gær. Faxaflóahafnir hafa á undanförnum árum lagt sérstaka áherslu á að fjölga skiptifarþegum sem nýta Keflavíkurflugvöll í upphafi eða lok ferða með skemmtiferðaskipum þar sem þeir dvelja lengur á landinu og skapa meiri tekjur fyrir íslenskt efnahagslíf.

Formleg opnun Varar fer fram síðar í þessum mánuði - og við hlökkum til að taka á móti öllum þeim gestum sem heimsækja höfuðborgina og Ísland með og í tengslum við skemmtiferðaskip í sumar og haust.

Vör - ný fjölnota farþegamiðstöð við Viðeyjarsund

Vör - ný farþegamiðstöð Faxaflóhafna við Viðeyjarsund í Reykjavík - er ætlað að tryggja betri þjónustu við ferðamenn og styðja markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega; þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf.

Farþegamiðstöðin leysir af hólmi þá tímabundu og takmörkuðu aðstöðu sem fyrir er á hafnarsvæðum Faxaflóahafna. Með tilkomu miðstöðvarinnar skapast meðal anars mun betri aðstaða fyrir móttöku, öryggisafgreiðslu og þjónustu við þann mikla fjölda gesta sem koma sjóleiðina til landsins eða hefja för sína hérlendis með skemmtiferðaskipum..

Miðstöð farþega og mannamóta yfir vetarmánuðina

Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, fær Vör annað hlutverk sem vettvangur fjölbreyttra viðburða, veislna og samkoma. Faxaflóhafnir tilkynntu í fyrra um samstarf við Múlakaffi um nýtingu hússins yfir vetramánuðina og hafa bókanir gengið vonum framar.

Vör rúmar allt að 2.000 gesti, um 900 manns í sæti og munu veislugestir njóta stórbrotins útsýnis yfir sundið.

Frekari upplýsingar um bókanir, viðburðar og veislumöguleika má finna hér.

dsf