Faxaflóahafnir
Vel heppnuð Cruise Europe 2026 í Reykjavík

Vel heppnuð Cruise Europe 2026 í Reykjavík

Fjölmennasta Cruise Europe ráðstefnan til þessa leiddi saman í Reykjavík fulltrúa hafna, skemmtiferðaskipafélaga og fjölmiðla víðs vegar að úr Evrópu og Norður-Ameríku. Ráðstefnugestir kynntu sér meðal annars Vör, nýja farþegamiðstöð Faxaflóhafna við Viðeyjarsund, og þau tækifæri sem Ísland hefur upp á sviði ferðaþjónustu.

Cruise Europe ráðstefnan fór fram í Reykjavík dagana 26.-29. maí. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefnan fer fram hérlendis og sú fjölmennasta hingað til. Jens Skrede, framkvæmdastjóri Cruise Europe samtakana, lýsti því yfir í samtali við Mbl.is að ráðstefnan í ár væri  „sennilega þá bestu sem hafi nokkurn tímann verið haldin“ og telur margvísleg sóknafæri vera fyrir íslenska ferðaþjónustu.

Rúmlega 270 þátttakendur sóttu ráðstefnuna og hefur hún aldrei verið fjölmennari frá því hún var fyrst haldin árið 1991.

Við hjá Faxaflóahöfnum erum stolt af því að hafa hýst ráðstefnuna í ár og hafa þar meðal annars verið gestgjafar þeirra sem móta siglingaleiðir framtíðarinnar og velja áfangastaði ferðamanna næstu ára og áratuga.

Kynning á Íslandi sem áfangastað

Cruise Europe 2026 fór að mestu leiti fram í Hörpu, en einnig var boðið upp á skoðunarferðir og viðburði í við höfnina og út fyrir borgarmörkin, meðal annars undir leiðsögn Guðna Th. Jóhannessonar fyrrum forseta lýðveldisins.

Emma Kjartansdóttir, deildastjóri skipaþjónustu Iceland Travel, og Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins tóku þátt í pallborðsumræðum ráðstefnunnar. Meðal framsögufólks voru Gísli Jóhann Hallsonn, yfirhafnsögumaður og Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðstkipasviðs hjá Faxaflóhöfnum þar sem fór meðal annars fram kynning á hugbúnaðinum Dokk sem þróaður er hérlendis til að þjónusta bókanir skemmtiferðaskipa.

Í kjölfar ráðstefnunar voru margir ráðstefnugestir viðstaddir opnun Varar, nýrrar fjölnota farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna, og sérvalin hópur fór í ferðalag um landið til að kynna sér hafnaraðstöðu og ferðaþjónustumöguleika.

Þetta er í fyrsta sinn sem Curise Europe ráðstefnan, sem farið hefur fram árlega frá árinu 1991, fer fram hérlendis. Meðal þeirra borga sem hýst hafa ráðstefnuna síðustu 35 ár eru Amsterdam, Bilbao, Bergen, Bordeux, Bremen, Brussel, Dublin, Edinborg, Lissabon, Stokkhólmur og Kaupmannahöfn sem héldu ráðstefnuna í fyrra.

Cruise Europe eru samtök rúmlega 140 hafna, áfangastaða og þjónustuaðila í Evrópu, allt frá Lissabon í suðri til Svalbarða í norðri.

Vör - miðstöð farþega og mannanamóta

Vör, ný fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Viðeyarsund, er ætlað að tryggja betri, skilvirkari og öruggari þjónustu við ferðamenn sem heimsækja Reykjavík með eða í tengslum við skemmtiferðaskip.

Farþegamiðstöðin leysir af hólmi þá tímabundu og takmörkuðu aðstöðu sem fyrir er á hafnarsvæðum Faxaflóahafna og styður við markmið fyrirtækisins um  fjölgun skiptifarþega; þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf.

Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, fær Vör annað hlutverk sem vettvangur fjölbreyttra viðburða, veislna og samkoma. 

Faxaflóhafnir tengja Ísland við umheiminn

Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslur í að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.