Faxaflóahafnir
Vör - opnunarhátíð fyrir alla fjölskylduna ⚓⛵🪢

Vör - opnunarhátíð fyrir alla fjölskylduna ⚓⛵🪢

Faxaflóhafnir bjóða ykkur hjartanlega velkomin á opnunarhátíð Varar, nýrrar fjölnota farþegamiðstöðvar við Viðeyjarsund, sunnudaginn 31. maí klukkan 13:00-16:00.

Boðið verður upp á fjölbreytta fjölskyldudagskrá, vinnusmiðjur og margskonar uppákomur fyrir yngri kynslóðina.

Dagskrá:

  • Barna-Rave 🪩
    Ívar Pétur Kjartansson
    Dansviðburður fyrir börn á öllum aldri.

  • Búum til báta ⛵
    Sesselja Konráðsdóttir, myndalistakennari
    Föndurhorn þar sem þátttakendur hanna sína eigin báta.

  • Hnútakennsla 🪢
    Skátarnir
    Tækifæri til að læra helstu hnúta sem notaðir eru í siglingum og sjómennsku.

  • Litla hafnarteiknistofan 🧑‍🎨
    Kristín Dóra Ólafsdóttir, listakona og kennari
    Hér geta krakkar og fjölskyldur teiknað bryggjur, báta og allt sem tengist lífinu við höfnina.

  • Ljósmyndahorn 🛟
    Björgunarsveitin Ársæll
    Mátaðu búnað og taktu skemmtilegar myndir - hjálmar, vesti og talstöðvar eins og í alvöru útköllum.

  • Vísindahornið - Ævintýri hafsins 🌊
    Sævar Helgi Bragason, sjónvarpsmaður og rithöfundur
    Helena Gylfadóttir, deildarstjóri Dýraþjónustu Reykjavíkur og Húsdýragarðinum
    Stjörnu-Sævar og Helena leiða gesti inn í heim vísinda og hafsins á lifandi og aðgengilegan hátt.

Veitingar:

  • Valdís 🍦😋
    Ís fyrir börn og fullorðna sælkera

  • Kaffi og kleinur
    Djús fyrir yngri kynslóðina

Staður og stund

📍 Vör - Skarfagarðar 6, 104 Reykjavík
⚓ Sunnudagur 31. maí, 13:00-16:00
🩵 Öll hjartanlega velkomin

Vör - ný fjölnota farþegamiðstöð við Viðeyjarsund

Vör er ný fjölnota farþegamiðstöð í Reykjavík sem stórbætir þjónustu, skilvirkni og öryggi fyrir erlenda ferðamenn. Utan annatíma skemmtiferðaskipa á veturna mun húsið hýsa fjölbreytta viðburði, veislur og samkomur. Vör fékk nafn sitt í nafnasamkeppni í upphafi árs þar  6.025 nafnatillögur frá 3.384 einstaklingum.

Búist er við alls 301.567 ferðamönnum til Reykjavíkur í vor, sumar og haust sem sigla til eða frá borginni með skemmtiferðaskipum. Ríflega helmingur farþega eru skiptifarþegar (e. turnaround passangers) sem hefja eða ljúka för sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti fyrir íslenskt efnhagslíf. Faxaflóahafnir hafa síðustu ár unnið markvisst að því að fjölga þessum hópi farþega og er opnun nýrrar farþegamiðstöðvar liður í að geta veitt þeim viðunanndi aðstöðu til þess að hefja eða ljúka ferð sinni í Reykjavík.

Sjá má myndir og myndband af fyrstu skipakomunni í Vör hér og komu hins glæsilega Norwegian Star hér.

Faxaflóhafnir tengja Ísland við umheiminn og miðin

Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslur í að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.