Fólk
Faxaflóahafnir bjóða farþegaskipum að hafa viðkomu á tveimur hafnarsvæðum; Reykjavík og Akranesi.
Tenging við umheiminn
Gátt ferðamanna að Íslandi
Farþegaflutningar eru mikilvægur þáttur í starfsemi Faxaflóahafna og tryggja fjölbreyttari tengingu Íslands við umheiminn.
Höfnin er miðpunktur fyrir bæði reglulegar ferjusiglingar og komu skemmtiferðaskipa, sem flytja hundruðir þúsunda ferðamanna til og frá landinu á hverju ári. Þessi starfsemi hefur veruleg áhrif á efnahagslíf höfuðborgarsvæðisins, þar sem hún styður við ferðaþjónustu, menningu, verslun og þjónustu. Farþegaflutningar stuðla þannig að aukinni hagsæld og fjölbreyttum tækifærum fyrir íbúa og fyrirtæki á svæðinu.
Algengar spurningar
Sjá nánarHafnaraðstaða
Sjá nánarÞjónusta við farþegaskip
Faxaport Cruise facilities (pdf)
Skiptistöð skipafarþega
Farþegamiðstöðin opnar vorið 2026
Vorið 2026 taka Faxaflóahafnir í notkun nýja og glæsilega fjölnota farþegamiðstöð sem þjónusta mun þann mikla fjölda farþega skemmtiferðaskipa sem hingað koma ár hvert. Um er að ræða 5.500 fm. byggingu á tveimur hæðum, með stórbrotnu útsýni yfir sundið.
Farþegamiðstöðin leysir af hólmi tímabundna og takmarkaða aðstöðu sem fyrir er, tryggir betri þjónustu við ferðamenn og styður við það markmið Faxaflóahafna að fjölga skiptifarþegum skemmtiferðaskipa.
Um farþegamiðstöðina
Sjá nánarEPI
Umhverfið í forgangi
EPI er verkfæri sem gerir höfnum kleift að skilgreina umhverfisspor skemmtiferðaskipa á meðan viðkomu stendur. Markmiðið er að koma á fjárhagslegu hvatakerfi til umhverfisvænni og sjálfbærari rekstrar skemmtiferðaskipa og draga þannig úr ávinningi við að koma til hafna Faxaflóahafna með mengandi skip.
Umhverfið á hafnarsvæðinu
Nýtt líf á hafnarsvæðinu
Á hafnarsvæðinu má finna veitingastaði, verslanir, ýmsa aðra þjónustu sem gerir upplifun íbúa og ferðamanna ánægjulega og eftirminnilega. Gott dæmi um þetta eru Verbúðirnar, þar sem gömlu húsin við höfnina hafa fengið nýtt líf sem verslanir, kaffihús og sýningarrými. Þannig verður hafnarsvæðið að heillandi blöndu af menningu, sögu og nútímalegri ferðaþjónustu.
Faxaflóahafnir leggja áherslu á að skapa aðlaðandi og sjálfbært umhverfi fyrir gesti og rekstraraðila. Með því að styðja við smærri fyrirtæki og menningarlega starfsemi á hafnarsvæðinu eykst fjölbreytni í þjónustu við bæði íbúa og ferðamenn. Þetta samspil milli atvinnulífs og umhverfis gerir hafnarsvæðið að einstökum áfangastað þar sem hafnarstarfsemi, menning og mannlíf mætast á skemmtilegan hátt.
Umsóknir
Umsóknir þjónustuaðila
Hér má finna umsóknarform fyrir þjónustuaðila, t.d. fyrir leigubíla, fyrir aðgangsnámskeið og fyrir umsóknir um aðgang að hafnarsvæðum.
Umsóknir
Beiðni um landtengingu
Beiðni um þjónustu, þar á meðal landtenging, skulu berast frá umboðsaðila skips 5 dögum fyrir komu skips til Reykjavíkur. Í beiðninni þurfa að koma fram tæknilegar upplýsingar sem og nafn, netfang og símanúmer ábyrgðaraðila skips (PIC) svo unnt sé að vinna úr beiðninni á réttan hátt.
Senda beiðni um landtengingu
Senda beiðniUpplýsingar um láspennu á Miðbakka og Faxagarði
Sjá nánar
Farþegar
Áætlun farþegaskutlna
Hér má finna bæði akstursplan fyrir farþegaskutlur ásamt áætlun sem er uppfærð reglulega.
Uppfærð áætlun
Sjá skjalAkstursplan fyrir farþegaskutlur
Sjá akstursplan
